Sjávarútvegur
Get the Flash Player to see this player.
Tryggingamiðstöðin (TM) er leiðandi á sviði vátryggingaþjónustu fyrir íslenskan sjávarútveg. Allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1956 hefur fyrirtækið sérhæft sig í lausnum sem tryggja hagsmuni atvinnugreinarinnar jafnt á sjó sem landi. Hjá félaginu starfar sérstakt sjávarútvegsteymi sem hefur yfirburðaþekkingu á sjávarútvegi og sérstökum þörfum hans á sviði vátrygginga.
Þjónusta og ráðgjöf
Ráðgjafar TM hafa víðtæka reynslu á sviði vátrygginga og veita persónulega þjónustu og ráðgjöf á því sviði. Viðskiptavinir hafa beinan aðgang að sínum ráðgjafa sem tryggir skjóta og skilvirka afgreiðslu mála. Auk vátrygginga býður TM viðskiptavinum sínum upp á ýmiss konar viðbótarþjónustu, svo sem fjármögnun, forvarnarsamstarf, mat á lausafé og margt fleira.
Sjávarútvegstryggingar TM
TM hefur mikið framboð af vátryggingum sem hægt er að sníða að þörfum hvers og eins fyrirtækis.
Dæmi um vátryggingar sem í boði eru:
- Skipatryggingar sem bæta tjón af völdum skipsskaða og óhappa
- Slysatryggingar á sjómönnum og starfsfólki í landvinnslu
- Eignatryggingar vegna eignatjóns og rekstrarstöðvunar
- Ábyrgðartryggingar sem bæta tjón þriðja aðila
- Skaðsemisábyrgð vegna tjóns af völdum hættulegra eiginleika afurða
- Farmtryggingar fyrir hráefni og afurðir í flutningi hvar sem er í heiminum
- Greiðslufallstryggingar sem bæta tjón vegna tapaðra viðskiptakrafna
- Fiskeldistryggingar sem bæta tjón á eldisfiski vegna sjúkdóma og skyndilegra óhappa
Tjónaþjónusta
TM er í fararbroddi hvað varðar úrlausn tjónamála og leggjum við áherslu á að veita skjóta og örugga tjónaþjónustu. Þjónustukannanir hafa leitt í ljós að viðskiptavinir TM eru ánægðastir samanborið við önnur tryggingafélög á Íslandi. Endurspeglast það ekki síst í kjörorði félagsins, "Ef þú ert tryggður - þá færðu það bætt". TM veitir neyðarþjónustu vegna tjóna allan sólarhringinn í síma 800 6700 þar sem hægt er að fá leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð og aðgerðir í kjölfar tjóna.
Forvarnir
TM veitir fyrirtækjum heildstæða þjónustu á sviði forvarna. Forvarnastarf TM byggist á samstarfi milli félagsins og viðskiptavina þess. Meginmarkmið forvarnastarfsins er að efla þekkingu og nýja hugsun hjá stjórnendum og starfsmönnum um forvarnamál. Meðal þess sem forvarnastarfið byggist á er að verjast óhöppum og draga úr hættu á tjónum og slysum. Sem dæmi um hvernig það er gert má nefna eftirfarandi:
-
Greining á helstu áhættuþáttum í rekstri fyrirtækja
- Þarfagreining og útfærsla á forvarnastarfi fyrirtækja
- Fræðsla og upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda
TM hefur þar að auki tekið þátt í sérstökum átaksverkefnum eða kynningarherferðum þar sem lögð hefur verið rík áhersla á forvarna- og öryggismál. TM veitir árlega forvarnaverðlaunin Varðbergið til viðskiptavina sem skara fram úr í forvarnamálum. Góðar og markvissar forvarnir auka rekstraröryggi og lágmarka tjónatíðni.
Tryggingasamsetning
Fyrir fyrirtæki í fiskvinnslu ráðleggjum við eftirfarandi tryggingasamsetningu.
- Skyldu- og kaskótryggingar bifreiða
- Ábyrgðartrygging fyrir atvinnurekstur
- Slysatrygging launþega
- Brunatrygging lausafjár
- Rekstrarstöðvunartrygging
- Brunatrygging húseignar
- Húseigendatrygging
- Slysa- og sjúkratrygging stjórnenda og eigenda
Ef starfsemin er í leiguhúsnæði falla út brunatrygging húseignar og húseigendatrygging.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um sjávarútvegstryggingar TM er að finna í einblöðungunum hér að neðan.
- Sjávarútvegur (útprentun) (pdf skjal, 52 kb)
- Vátryggingar fyrir útgerð (útprentun) (pdf skjal, 50 kb)
- Vátryggingar fyrir landvinnslu (útprentun) (pdf skjal, 52 kb)
- Fiskeldistryggingar (útprentun) (pdf skjal, 51 kb)
- Farmtryggingar (útprentun) (pdf skjal, 54 kb)
Fáðu ráðgjöf
Ráðgjafar TM eru ávallt til þjónustu reiðubúnir. Hafðu samband í síma 515 2000 eða á fyrirtaeki@tm.is og fáðu ráðgjafa TM í heimsókn til að meta tryggingaþörf og gera tilboð í vátryggingarvernd þína.

