Ábyrgðartryggingar
TM býður fjölþætta vátryggingarvernd á sviði ábyrgðartrygginga.
Ábyrgðartrygging fyrir atvinnurekstur
Vátryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar sem fellur á vátryggingartaka eða starfsmenn hans valdi þeir þriðja aðila tjóni. Bætur greiðast meðal annars fyrir tjón á munum og vegna slysa á fólki.
-
Skaðsemisábyrgð fyrir atvinnurekstur (Framleiðsluábyrgð)
Almenn ábyrgðartrygging vegna atvinnurekstrar tekur einnig til skaðabótaábyrgðar sem fellur á hinn vátryggða vegna slysa á mönnum eða skemmda á munum af völdum hættulegra eiginleika vöru sem vátryggður framleiðir og/eða selur. Ábyrgðin gildir ekki erlendis, nema sérstaklega sé um það samið.
-
Ábyrgðartrygging vegna húseigna
Atvinnurekandi sem er eigandi eða notandi húss eða húseignarhluta getur bakað sér skaðabótaábyrgð vegna tjóna sem rekja má til hússins sjálfs. Vátryggt er gegn sömu þáttum og í ábyrgðartryggingu fyrir atvinnurekstur.
Ábyrgðartrygging útgerðarmanns
Í venjulegri húftryggingu fiskiskipa getur útgerðarmaður meðal annars vátryggt sig gegn tjónum sem valdið er með árekstri. Ábyrgðartrygging útgerðarmanns bætir þess vegna tjón sem verða með öðrum hætti, til dæmis ef slys verða á sjómönnum.
Ábyrgðartrygging vinnuvéla
Vinnuvélar og alls konar tæki sem notuð eru í atvinnurekstri þarf að vátryggja sérstaklega, enda séu þau ekki vátryggð í lögboðinni ábyrgðartryggingu ökutækja. Vátryggt er gegn sömu þáttum og í ábyrgðartryggingu fyrir atvinnurekstur.
Lögboðnar starfsábyrgðartryggingar
Samkvæmt lögum eru nokkrar starfsstéttir skyldugar að kaupa og viðhalda starfsábyrgðartryggingu. Slíkar vátryggingar bæta viðskiptavinum þeirra sem tryggt hafa almennt fjártjón sem þeir kunna að verða fyrir vegna starfa sinna. Eftirtaldar starfsstéttir/aðilar eru skyldugir til að kaupa starfsábyrgðartryggingu:
- Bifreiðasalar notaðra ökutækja.
- Bílaleigur.
- Byggingastjórar.
- Fasteigna- og skipasalar.
- Hönnuðir aðal- og séruppdrátta.
- Leigumiðlarar.
- Löggiltir endurskoðendur.
- Lögmenn.
- Verðbréfafyrirtæki og verðbréfamiðlarar.
Frjálsar starfsábyrgðartryggingar
Neðangreindar starfsstéttir hafa möguleika á að tryggja starfsemi sína gagnvart skaðabótakröfum þegar mistök eiga sér stað við sérfræðivinnu:
- Arkitektar.
- Læknar.
- Rekstrarráðgjafar.
- Tæknifræðingar.
- Umboðsmenn eigenda vörumerkja og einkaleyfa.
- Verkfræðingar.
- Starfsábyrgðartrygging félagsmanna í félagi bókara.
- Starfsábyrgðartrygging félagsmanna í félagi bókhaldara.
- Starfsábyrgðartrygging skoðunarmanna fasteigna.
Sjúklingatryggingar
Vátryggingin tekur til skaðabótaskyldu, sem fellur á vátryggingartaka þegar sjúklingur hans verður fyrir líkamlegu eða geðrænu tjóni, sem vátryggingartaki ber ábyrgð á samkvæmt lögum.
Verktryggingar
Verktrygging er fjárhagsleg ábyrgðartrygging til tryggingar á réttum efndum verktaka samkvæmt samningi gagnvart verkkaupa. Verktryggingar eru venjulega teknar vegna verklegra framkvæmda, til dæmis húsbygginga, vegagerðar og þess háttar. Ef verktakinn uppfyllir ekki efndir samkvæmt verksamningi þá á verkkaupi rétt á bótum sem nema fjárhagslegu tjóni hans af þeim sökum, þó að hámarki þeirri fjárhæð sem getið er um í vátryggingarskírteini.
Ábyrgðartrygging stjórnenda
Stjórnendur fyrirtækja geta orðið persónulega ábyrgir fyrir mistökum í starfi sem valda öðrum fjárhagslegu tjóni. Vátryggingin greiðir skaðabætur sem stjórnendur eru dæmdir til að greiða samkvæmt dómstólum auk málsvarnarkostnaðar.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

