Eignatryggingar

Eignatryggingar

Eignatryggingar eru sá flokkur trygginga sem bæta vátryggingartaka margvísleg tjón á eignum hans, hvort sem um er að ræða tjón á lausafjármunum eða fasteignum.

Brunatrygging húseignar

Brunatrygging húseignar er lögboðin trygging og tryggir húseignina fyrir tjóni af völdum bruna. Vátryggingarfjárhæðin miðast við brunabótamat húseignarinnar. Í tengslum við trygginguna er innheimt iðgjald af viðlagatryggingu sem er lögboðin náttúruhamfaratrygging. Fasteignamat ríkisins annast mat allra húseigna á landinu samkvæmt lögum.

Brunatrygging lausafjár

Brunatrygging lausafjár bætir tjón á vélum, innréttingum, tækjum, lager og öðru lausafé af völdum eldsvoða, sótfalls, eldingar eða sprengingar. Í tengslum við trygginguna er innheimt iðgjald af viðlagatryggingu sem er lögboðin náttúruhamfaratrygging. Samhliða brunatryggingunni er mjög algengt að taka innbrotstryggingu, sem nær til tjóna sem verða við innbrot og þjófnað á lausafé, og vatnstjónstryggingu, sem tekur til tjóna á lausafé vegna skyndilegs leka úr leiðslum hússins svo og vegna skýfalls, asahláku eða óveðurs.

Brunatrygging birgða

Brunatrygging birgða er samsvarandi trygging og brunatrygging lausafjár en vátryggingin er sérsniðin að fyrirtækjum sem eiga vörubirgðir sem geta sveiflast nokkuð milli mánaða að verðmæti. Hámarksbætur úr tryggingunni er tilgreind í vátryggingarfjárhæð en vátryggingartakinn greiðir iðgjald samkvæmt reiknuðum meðalbirgðum yfir vátryggingartímabilið.

Fartölvutrygging

Fartölvutrygging er víðtæk vátryggingarvernd sem sniðin er að þörfum fartölvueigenda. Vátryggingin tekur meðal annars til tjóns af völdum eðlilegrar notkunar, flutnings, innbrotsþjófnaðar eða skyndilegs og utanaðkomandi atburðar. Sjá nánar um fartölvutryggingu TM.

Umsókn um fartölvutryggingu TM.

Glertrygging

Glertrygging bætir tjón á gleri í viðkomandi húseign ef það brotnar eftir að því hefur verið komið endanlega fyrir.

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er samsett tryggingarvernd tíu tryggingarþátta og tekur til helstu tjóna sem geta orðið á húseigninni sjálfri annarra en brunatjóna. Húseigendatrygging veitir þannig nauðsynlega vernd fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Vátryggingarfjárhæðin miðast við brunabótamat húseignarinnar.

Kæli- og frystivörutrygging

Kæli- og frystivörutrygging bætir tjón á hinum tryggðu vörum, aðallega frystum matvælum, sem orsakast vegna þess að kælimiðill streymir út eða hiti hækkar vegna skyndilegrar bilunar í kælivélum eða straumrofs eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika.

Rekstrarstöðvunartrygging

Rekstrarstöðvunartrygging er ætlað að bæta það rekstrartjón sem vátryggingartaki verður fyrir af völdum samdráttar í vörusölu eða þjónustu og rekja má orsökina til brunatjóns. Tryggingin bætir einnig tjón í kjölfar innbrota og vatnstjóna.

Rafeindatækjatrygging

Rafeindatækjatrygging nær til tækja og búnaðar svo sem tölva og tölvukerfa, stjórnborða, voga og símakerfa. Hún tekur til beinna skemmda vegna skyndilegra bilana sem stafa meðal annars af völdum vinnsluóhapps/rekstraróhapps, mistaka starfsmanna, efnis- eða steypugalla. Tryggingin bætir ekki rekstrartjón eða annað óbeint tjón.

Skaðatrygging á lausafé

Skaðatrygging á lausafé er víðtæk eignatrygging sem tekin er á einstaka dýra muni svo sem á vídeóvél, myndavél og önnur dýr tæki sem ekki eru að staðaldri á sama vátryggingarstað.

Vélatrygging

Vélatrygging nær til beinna tjóna vegna skyndilegrar vélarbilunar á vélum, meðal annars af völdum vinnsluóhapps/rekstraróhapps, mistaka starfsmanna, efnis- eða steypugalla. Tryggingin bætir ekki rekstrartjón eða annað óbeint tjón.

Rekstrarstöðvunartrygging vegna vélarbilunar

Rekstrarstöðvunartrygging vegna vélarbilunar er ætlað að bæta það rekstrartjón sem vátryggingartaki verður fyrir af völdum samdráttar í vörusölu eða þjónustu þegar rekja má orsökina til vélatjóns.

Verktakatrygging

Verktakatrygging er víðtæk eignatrygging sem bætir skyndilegt tjón á mannvirkjum eða búnaði á framkvæmdatíma.

Landbúnaðartrygging

Landbúnaðartrygging er samsett vátryggingarvernd sem felur í sér lausafjártryggingu og ábyrgðartryggingu og er ætluð bændum sem leggja stund á hefðbundnar búgreinar. Sérhæfðan búrekstur verður að vátryggja sérstaklega, svo sem loðdýra-, yl-, alifugla, garð- og svínarækt.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III