Ferðalög

Ferðalög


Það eykur líkur á vel heppnuðu fríi að sýna fyrirhyggju og tryggja sig gagnvart óvæntum uppákomum. TM býður upp á sérstakar ferðatryggingar sem sameina allar nauðsynlegar tryggingar sem fólk þarf á að halda.  Þá bendum við einnig á ferðatryggingar korthafa, en þeir korthafar sem ekki greiða ferðakostnað með MasterCard eða Visa kreditkorti fyrir brottför geta keypt hana. Það geta einnig þeir sem ætla að vera lengur en 60 daga í orlofs- eða viðskiptaferð.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

Ferðatryggingar korthafa

Merki MasterCard. Vefsíða um ferðatryggingar MasterCard. Merki VISA. Vefsíða um ferðatryggingar VISA.


Tryggingamiðstöðin hf. hefur annast ferðatryggingar MasterCard og VISA kreditkorthafa frá árinu 1991.

Meginsjónarmið við samsetningu trygginganna eru að korthafar njóti öruggrar slysa- og sjúkratryggingar og bestu neyðarþjónustu sem völ er á.

Neyðarþjónustan útvegar til dæmis lækni og sjúkrahúsvist, skipuleggur og sér um að flytja hinn vátryggða heim frá útlöndum ef hann slasast þar eða veikist alvarlega.

Með því að greiða tilskilinn hluta ferðakostnaðar, fargjalds og gistingar, áður en ferð hefst, annað hvort með eingreiðslu eða með raðgreiðslum MasterCard og VISA, nýtur korthafinn sjálfkrafa traustrar ferðatryggingar og neyðarþjónustu um allan heim. Ferðatryggingar kreditkorthafa eru mismunandi eftir tegund korts.

Þeir korthafar sem ekki greiða ferðakostnað með MasterCard eða VISA kreditkorti fyrir brottför geta keypt ferðatryggingu korthafa, ef þeirra kort er tryggt hjá TM. Það geta einnig þeir sem ætla að vera lengur en 60 daga í orlofs- eða viðskiptaferð.

Með því að smella á MasterCard eða VISA merkin hér að ofan má sjá hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að trygging sé í gildi. Þar er tenging í samanburðartöflu sem sýnir þætti tryggingarinnar, hámarksvátryggingarfjárhæðir og eigin áhættur.

Hér er hægt að sjá hvar viðkomandi kreditkort eru tryggð.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 

Ferðatrygging TM

Ferðakort TM

Það eykur líkur á vel heppnuðu fríi að sýna fyrirhyggju og tryggja sig gagnvart óvæntum uppákomum.

Ferðatrygging Tryggingamiðstöðvarinnar sameinar allar nauðsynlegar tryggingar sem þú og þínir þurfið á að halda.

  • Sjúkrakostnaðar- og ferðarofstrygging
  • Ferðaslysatrygging
  • Farangurstrygging

Ferðatryggingakortið tryggir þér aðgang að neyðarþjónustu SOS International um allan heim. Starfsmenn SOS International eru til taks á öllum tímum sólarhrings ef upp koma alvarleg veikindi eða slys.

Ferðatrygging TM hentar þeim sem ekki borga ferðina með kreditkorti, eða eiga ekki kreditkort og/eða eru ekki með víðtæka fjölskyldutryggingu hjá TM eða eru ekki með ferðatryggingu innifalda í Heimatryggingu TM.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III