Flugvélatryggingar
Samkvæmt lögum um loftferðir númer 60/1998 og reglugerð númer 78/2006, sem tók gildi þann 1. mars 2006, skulu flugrekendur hafa í gildi ábyrgðartryggingu gegn tjóni á mönnum eða hlutum í loftfari, svo og gegn tjóni á innrituðum farangri og öðrum varningi sem flytjandinn ber ábyrgð á samkvæmt ákvæðum laganna.
Þá skal einnig samkvæmt sömu lögum hafa í gildi ábyrgðartryggingu gegn tjónum, sem stafa kunna af notkun loftfara, á mönnum eða hlutum utan loftfarsins. Skal tryggingin einnig greiða kostnað við hreinsun á slysstað og brottnám flaks.Vátryggingarfjárhæð gagnvart þriðja aðila utan loftfars ræðst af heildarflugtaksþunga loftfarsins og eru fjárhæðirnar vegna hvers tjóns á bilinu SDR 750.000 - 700.000.000.
Eigendum og/eða umráðamönnum einka- og kennsluflugvéla skal skylt, auk ofangreindra ábyrgðartrygginga, að taka og hafa í gildi slysatryggingu fyrir þá sem ferðast með slíkum vélum, þar með talið stjórnendum þeirra, vegna slysa sem verða rakin til notkunar loftfarsins. Vátryggingarfjárhæð vegna dauða og 100% varanlegrar örorku skal að lágmarki miðast við jafnvirði 100.000 SDR. Ekki greiðist tímabundin örorka (dagpeningar) úr þessari slysatryggingu.
Áður en iðgjald er ákveðið þarf flugrekandi að fylla út sérstaka beiðni með margvíslegum upplýsingum um flugvélina, eigendur og flugmenn.
Á heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands, http://www.caa.is , eru nánari upplýsingar um reglugerð númer 78/2006, skýringar á helstu breytingum sem verða við gildistöku reglugerðarinnar og dæmi um vátryggingarskyldu vegna loftfara.
Upplýsingar um gengi SDR á heimasíðu Seðlabankans.
Hægt er að kaupa eftirfarandi vátryggingar til viðbótar við ofangreindar lögboðnar tryggingar en þær eru:
Húftrygging Flugvélar
Vátryggingin tekur til hvers konar tjóns á flugvél af völdum skyndilegs utanaðkomandi atviks. Þá nær hún jafnframt til þjófnaðar eða hvarfs á flugvél.
Skírteinistrygging
Vátryggingin greiðir bætur vegna flugréttindamissis flugmanna af völdum slysa eða sjúkdóma.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

