Farmtryggingar
Farmtrygging bæti tjón sem verður á vörum í flutningi. Vátryggingin greiðir jafnframt bætur vegna tjóns sem flutningsaðili ber ábyrgð á en ábyrgð hans er takmörkuð samkvæmt lögum og þar af leiðandi er eigandi vörunnar tryggður að fullu leyti fyrir sínu tjóni. TM hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sviði farmtrygginga eftir áratuga þjónustu við íslenskt atvinnulíf. TM býður viðskiptavinum sínum þrjár tegundir skilmála fyrir farmtryggingar.
Flutningstrygging A
Þessir skilmálar eru víðtækir og greiða tjón á vörum af völdum allra óhappa sem kunna að koma fyrir á flutningsleiðinni, nema vegna óhappa sem sérstaklega eru undanþegin og tilgreind í skilmálunum.
Flutningstrygging B
Þessir skilmálar eru takmarkaðir og eiga sérstaklega við gagnvart þeim atburðum sem flutningstryggingin er bótaskyld fyrir ef þeir kunna að valda tjóni á hinni vátryggðu vöru.
Flutningstrygging C
Þessir skilmálar eru þröngir og eiga við á sama hátt og í skilmálum B gagnvart þeim atburðum sem flutningstryggingin er bótaskyld fyrir og sem valda kunna tjóni á hinni vátryggðu vöru. Hér eru atburðirnir færri en tilgreindir eru í skilmálum B.
Auk framangreindra skilmála eru boðnir viðbótarskilmálar sem bæta tjón á vörum í flutningi, sem eru undanskildir í skilmálum A, B og C en þessir atburðir eru af völdum stríðs og verkfalla.
Þeir nefnast Stríðsskilmálar fyrir flutningstryggingu og Verkfallsskilmálar fyrir flutningstryggingu.
Undanþáguákvæði um geislamengun
Undanþáguákvæði um geislamengun er ákvæði sem undanskilur tjón á vörum í flutningi af völdum geislamengunar.
Hinir íslensku skilmálar yfir flutningstryggingar eru því sem næst samhljóða enskum skilmálum sem nefnast "Institute Cargo Clauses"
en þeir eru hvað mest notaðir í alþjóðlegum viðskiptum.
Framkvæmd flutningstrygginga
Hægt er að kaupa flutningstryggingar fyrir einstakar ferðir. Það er gert með því að hringja í TM og biðja um vátryggingu eða senda skriflega beiðni. Það hefur orðið mun algengara síðari ár að inn- og útflutningsfyrirtæki geri vátryggingarsamninga um flutningstryggingar við vátryggingafélög. Þessir samningar eru oftast til eins árs í senn en endurnýjast sjálfkrafa hafi samningnum ekki verið sagt upp fyrir endurnýjun hans. Í samningnum er meðal annars ákvæði um hvernig og hvenær skuli senda inn skilagreinar um flutninga sem falla undir samninginn. Getur þetta ákvæði verið mjög mismunandi allt eftir eðli og umfangi fyrirtækjanna. Slíkir samningar hafa ótvíræða kosti fyrir báða aðila vegna þess að þeir tryggja öryggi og sparnað.
Vörur í flutningi á milli landa, annarra en Íslands, er hægt að tryggja hjá TM. Hið sama gildir um vörubirgðir í öðrum löndum, þær er hægt að bruna-, vatns- og þjófnaðartryggja hjá félaginu.
Gildistími flutningstryggingar
Flutningstryggingin gildir fyrir vöru frá þeim stað sem vátryggingartaki segir til um og þar til varan er komin í hendur móttakanda eða í allt að 60 daga í vörugeymslu flutningsaðila á ákvörðunarstað. Ef um flugfragt er að ræða gildir flutningstryggingin í allt að 30 daga í vöruhúsi flutningsaðila á ákvörðunarstaðnum.
Iðgjöld
Iðgjöld af farmtryggingum ákvarðast af þáttum eins og tegund farms, flutningsleið, pökkun, flutningsmáta, flutningsfari, tjónareynslu við sambærilega flutninga, tegund vátryggingarskilmála, hvort valin er sjálfsábyrgð eða ekki og svo framvegis. Af þessu leiðir að iðgjöld af flutningstryggingum geta verið mjög mismunandi.
Vátryggingarverðið
Algengt er að vátryggingarverð vöru miðist við tollverð hennar, þegar hún er flutt til landsins en við CIF-verð þegar hún er flutt úr landi.
Oft er bætt við verðið 5-10% álagi sem samanlagt verður þá vátryggingarverð vörunnar.
Sölu- og kaupskilmálar Alþjóðaverslunarráðsins "Incoterms"
Skilmálar þessir eru mikið notaðir í samningum á milli kaupenda og seljenda um kaup á vörum sem flytja á milli landa.
Skilmálarnir segja til um réttindi og skyldur samningsaðila þar með talið fyrirmæli um flutning á vöru og afhendingu hennar, um greiðslu inn- og útflutningsgjalda, um skiptingu á flutningskostnaði á milli aðila og það sem mestu varðar þegar kemur að flutningstryggingum, hvenær ábyrgð á vöru flyst á milli aðila.
Það er þess vegna nauðsynlegt að samningsaðilar geri sér grein fyrir hvað felst í þessum skilmálum.
Tjón
Þegar tjón verður á vátryggðri vöru í flutningi skal þegar í stað tilkynna það til TM og gera flutningsaðila jafnhliða ábyrgan, skriflega, fyrir tjóninu.
Ef um tjón er að ræða á vöru í innflutningi sendir félagið tjónaskoðunarmann til að meta tjónið. Ber þá vátryggðum að hafa öll gögn er varða vöruna til reiðu fyrir skoðunarmanninn.
Fara skal að með sama hætti þegar um tjón er að ræða á vöru í útflutningi. Kaupanda ber að kalla til óháðan tjónaskoðunaraðila til dæmis "Lloyd's agents"
til að meta tjónið og gera um það skýrslu. Kaupandinn sendir síðan kröfubréf til TM ásamt skoðunarskýrslu og gögnum sem málið varða. TM greiðir kostnað skoðunaraðilans.
Bætur
Samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga númer 20/1954 skal vátryggingarfélag greiða bætur fyrir bótaskylt tjón eigi síðar en fjórtán dögum eftir að það hefur fengið í hendur öll gögn og upplýsingar, sem varða tjónið. Semja má um bætur í íslenskum krónum og einnig erlendum gjaldmiðlum, þeim sömu og tilteknir eru í sölusamningi.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

