Líftrygging
Líftrygging greiðir rétthöfum bætur við fráfall þess sem tryggður er, hvort sem það er af völdum sjúkdóma eða slysa. Hinn vátryggði ákveður sjálfur hverjir eru rétthafar bóta og eru þeir tilgreindir á vátryggingarskírteini. Bætur eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru skattfrjálsar. Líftrygging gildir til 70 ára aldurs hins vátryggða.
Hvað þarftu háa líftryggingu?
Tilgangur líftryggingar er að tryggja fjárhagslegt öryggi þeirra sem standa þér næst. Við hjá TM bendum því fólki á að hafa eftirfarandi þætti í huga við ákvörðun á líftryggingarfjárhæð:
-
Ráðstöfunartekjur í 2-3 ár
-
Fjöldi barna á heimilinu undir 18 ára aldri
-
Skuldir heimilisins
Hvað er iðgjaldafrelsi?
Iðgjaldafrelsi er innifalið í líf- og sjúkdómatryggingum. Það þýðir að ef sjúkdómur eða slys veldur hinum vátryggða skertri starfsorku sem nemur helmingi eða meira á hann rétt á hlutfallslegri lækkun eða niðurfellingu iðgjalds.
Svona sækir þú um
Hér getur þú nálgast umsóknareyðublaðið (pdf skjal, 552 kb). Þegar þú hefur fyllt út og undirritað umsóknina skal senda hana til TM í pósti. Umsóknin verður síðan yfirfarin hjá félaginu og tryggingar gefnar út samkvæmt henni, verði hún samþykkt. Hugsanlega þarf að afla frekari upplýsinga frá þér eða læknum og bíður þá umsóknin frekari afgreiðslu þar til öll gögn hafa borist og þau verið metin.
Viltu fá tilboð fyrst?
Hægt er að sækja um tilboð í líftryggingu áður en umsókn er fyllt út. Ráðgjafi TM hefur samband til að senda þér tilboð og leiða þig í gegnum umsóknarferlið.

