Aukið öryggi ungra ökumanna

Með það að markmiði að auka öryggi ungra ökumanna kynnti TM til leiks upplýsingasíðuna - bilprof.tm.is.  Síðan hefur að geyma allar upplýsingar um ökunámsferlið sjálft ásamt því að svara öllum spurningum sem viðkoma æfingaakstri, ökunámi og ökuprófi.

Til þess að brýna ennþá betur fyrir ungum ökumönnum að fara varlega í umferðinni bjóðum við öllum ungmennum á bílprófsaldri og foreldrum þeirra að gera samning sín á milli um öruggan akstur.  Hægt er að undirrita samninginn í gegnum bilprof.tm.is en til þess að undirrita samninginn rafrænt getur þú nýtt Fésbókaraðgang þinn.

Þeir sem ekki eru ekki á Fésbókinni geta fyllt út samninginn á pdf-sniði og sent okkur skannað eintak á bilprof@tm.is eða með hefðbundnum hætti til okkar í Síðumúla 24, 108 Reykjavík

Ávinningur

Geri ungur ökumaður og forráðamaður með sér samning um öruggan akstur og fylgi honum af heilum hug er ávinningurinn tvíþættur

  • Aukið öryggi í umferðinni og þar með minni líkur á óhöppum og slysum
  • Lægri iðgjöld, bæði fyrir forráðamann sem lánar ungum ökumanni bíl sinn til umráða og fyrir unga ökumanninn þegar hann kaupir sér eigin bíl. Ávinningurinn getur numið allt að 30%.

Kynntu þér málið betur á bilprof.tm.is


Æfðu þig fyrir skriflega prófið

Á Fésbókarsíðu TM getur þú æft þig fyrir skriflega bílprófið.

Prófið er alveg eins uppbyggt og raunverulega skriflega bílprófið, eða samtals 30 spurningar. Hver spurning er krossaspurning og getur verið um fleiri en einn möguleika að ræða. Prófinu er skipt í A og B hluta, 15 spurningar í hvorum hluta og máttu aðeins vera með tvær villur í A hluta. Þú stenst ekki prófið ef þú gerir fleiri en sjö villur í heild. Það telst villa ef kross vantar eða honum er ofaukið. Þá birtast stigin, fjöldi villa og hvaða einkunn þú ert komin/n með.

Æfðu þig fyrir skriflega prófið