Einstaklingar

Iðgjald tekur mið af tegund bíls, notkun bíls og búsetu vátryggingartaka samkvæmt iðgjaldatöflu og tjónareynslu á eftirfarandi hátt.

Sama iðgjald er nú tekið fyrir alla aldurshópa.

Greiði félagið bætur vegna þess ökutækis sem samningur tekur til að fjárhæð 75.000 krónur eða meira í hverju tjóni skal greiða iðgjaldsálag að fjárhæð 25.000 krónur. Ef ökumaður er 23 ára eða yngri hækkar iðgjaldsálagið um kr. 25.000. Iðgjaldsálagið fellur í gjalddaga um leið og félagið hefur greitt fyrrnefnda fjárhæð.

Verði tjónareynsla félagsins vegna tiltekins vátryggingartaka með einhverjum hætti óeðlileg getur félagið ákveðið sérstakt iðgjald fyrir vátrygginguna. Til viðmiðunar skal haft hvort tjón séu óeðlilega tíð, hverjar tjónsfjárhæðir eru og hvort tjón hafi að einhverju leyti borið að með óeðlilegum hætti. Einkum eru skoðuð tilvik þegar sami vátryggingartaki hefur valdið þremur tjónum á einu ári eða fjórum tjónum á tveimur árum. Leiði þessi skoðun til þeirrar niðurstöðu að áhætta vegna vátryggingarinnar sé umfram það sem iðgjaldsgrundvöllur félagsins gerir ráð fyrir getur félagið ákveðið sérstakt iðgjald fyrir vátrygginguna. Iðgjaldsálag þetta getur numið frá 30% upp í 300% álag á iðgjald tryggingarinnar.

Ný gjaldskrá tekur gildi nú þegar fyrir nýtryggingar og við næstu endurnýjun hjá þeim viðskiptavinum sem eru með bílatryggingar í gildi.


 

 



Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III