Gæludýratryggingar TM skiptast í fjóra hluta, sjúkrakostnaðartryggingu, líf- og heilsutryggingu, ábyrgðartryggingu og gæslutryggingu. Tryggingarnar ná yfir ýmsar tegundir gæludýra. Lágmarksaldur gæludýra er fjórar vikur þó mismunandi eftir tegundum. Hægt er að ganga frá tryggingunum með því að fylla út umsókn á netinu, senda inn læknisvottorð og mynd af dýrinu.
Í öllum fjórum tryggingunum felst að umhirða gæludýrsins, vistarverur og fóðrun skuli vera í samræmi við ákvæði laga um dýravernd og að bólusetja skuli fyrir þeim sjúkdómum og sýkingum sem dýralæknar ráðleggja. Þá eru tryggingarnar einungis í gildi á Íslandi.
Hámarks vátryggingarfjárhæð fer eftir tegund dýrs og getur hún lækkað eftir því sem dýrið eldist. Sjá töflu að neðan um aldur gæludýra.
Upphæð eigin áhættu kemur fram í vátryggingarskírteini vátryggingartaka. Eigin áhætta gefur til kynna þá fjárhæð sem er hlutur vátryggingartaka í hverju einstöku tjóni. Annað hvort er hún dregin frá við tjónsuppgjör eða vátryggingartaki greiðir hana til TM.
| Hundar | Kettir | Kanínur | Fuglar | |
|---|---|---|---|---|
| Aldurslágmark | 4 vikna | 6 vikna | 6 vikna | 10 vikna |
| Hámarksaldur endurnýjunar | 8 ár | 11 ár | 5 ár | |
| Hámarksaldur nýtryggingar | 7 ár | 7 ár | 3 ár |
Það getur verið kostnaðarsamt að leita aðstoðar fyrir gæludýr hjá dýralækni, einkum ef framkvæma á aðgerðir. Þegar gæludýr veikist eða slasast er álag að þurfa að hafa áhyggjur af fjármálum ofan á allt annað og greiðir þessi trygging lækniskostnað vegna slysa og sjúkdóma hjá gæludýrum.
Vinsamlegast athugið að upptalningar eru ekki tæmandi. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar.
Hvað er bætt?
|
Hvað er ekki bætt?
|
Með ábyrgðartryggingu er eigandi gæludýrsins tryggður fyrir bótaskyldu sem fallið getur á hann vegna líkamstjóns eða skemmda á munum sem dýrið getur valdið.
Hvað er tryggt?
|
Hvað er ekki tryggt?
|
Ef veikindi eða slys ber að höndum er gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hvað verður um gæludýrið. Gæslutryggingin greiðir kostnað vegna vistunar og gæslu dýrsins á viðurkenndu dýrahóteli ef umsjónarmaður þess þarf óvænt að dvelja á sjúkrahúsi lengur en þrjá daga vegna slyss eða skyndilegra veikinda.
Tryggingin bætir
|
Tryggingin greiðir ekki kostnað ef fjarvera stafar af
|
Auðvitað kemur ekkert í staðinn fyrir ástkært gæludýr en því má ekki gleyma að þau geta verið mjög verðmæt og fjárhagslegt tjón fjölskyldunnar umtalsvert. Þessi trygging greiðir bætur ef gæludýr deyr, týnist eða missir algjörlega heilsu sína.
hvenær greiðast bætur?
|
Hvenær greiðast ekki bætur
|
Vinsamlegast athugið að upptalningar eru ekki tæmandi. Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá