Sjúkrakostnaðartrygging er fyrir þá sem njóta ekki sjúkratrygginga þar sem þeir hafa ekki átt lögheimili á landinu í sex mánuði. Tryggingin er fyrir Íslendinga sem flutt hafa lögheimilið frá Íslandi og eru ekki lengur sjúkratryggðir inni í almannatryggingum en eru að flytja heim aftur. Einnig er tryggingin fyrir útlendinga sem eru að flytja lögheimili sitt til Íslands eða koma hingað og vinna tímabundið samkvæmt dvalarleyfi samþykktu af Útlendingastofnun. Tryggingin er skammtímatrygging og gildir í sex mánuði frá því að vátryggður kemur til Íslands.
Hvað bætir tryggingin?
Sjúkrakostnaðartrygging er í meginatriðum eins og almannatryggingalögin og bætir til dæmis sjúkrakostnað, lyfjakostnað og lækniskostnað en þó með ákveðnum takmörkunum eins og fram kemur í skilmálum.
Nánari upplýsingar um sjúkrakostnaðartryggingu er að finna í skilmálum vátryggingarinnar.
Vátryggingarfjárhæð og eigin áhætta
Útlendingastofnun gerir kröfu um lágmarksvátryggingarfjárhæð og er hún 2.000.000 krónur en þó er hægt að velja hærri fjárhæðir. Eigin áhætta er 50.000 krónur vegna samanlagðs kostnaðar á vátryggingatímabilinu.
Umsóknarferlið
Vátryggður þarf sjálfur að fylla út beiðni, staðsetja, dagsetja og undirrita. Ef ekki er til kennitala fyrir vátryggðan þá þarf að fylgja með ljósrit af vegabréfi svo félagið geti sótt um kennitölu hjá Hagstofu Íslands.
Fáðu tilboð í sjúkrakostnaðartryggingu
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

