Námsmannatrygging

Námsmannatrygging

Tryggingamiðstöðin býður nú fyrst íslenskra tryggingafélaga upp á sérstaka námsmannatryggingu sem felur meðal annars í sér forfallatryggingu fyrir skólagjöldum.

Tryggingin bætir skráningar- og skólagjöld sem ekki fást endurgreidd, geti námsmaður ekki hafið nám eða fellur frá námi sökum veikinda eða slysfara hans sjálfs eða náinna vandamanna innan 8 vikna frá upphafi kennsluárs eða á fyrri helmingi styttra náms.

Við hjá TM teljum nauðsynlegt að námsmenn geti tryggt sig fyrir þeim fjárhagsskaða sem mögulega hlýst af, geti þeir ekki hafið nám eða þurfi að hætta námi innan tiltekins tíma. Nemendur í háskólum og ýmsum öðrum skólum hérlendis og erlendis greiða tugi og jafnvel hundruð þúsunda króna í skráningar- og skólagjöld á hverjum vetri og því er ljóst að um töluverða hagsmuni er að ræða hjá þessum hópi.

Fáðu tilboð í námsmannatryggingu

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III