Mörg ungmenni sem eru að undirbúa sig fyrir ökuprófið eiga foreldra, eða aðra velunnara, sem vilja leggja sitt af mörkum til að ökuneminn verði farsæll ökumaður. Æfingaakstur er hugsaður sem viðbót við ökunámið sjálft en kemur ekki í staðinn fyrir ökutíma hjá menntuðum ökukennara. Honum er fyrst og fremst ætlað að þjálfa ökunemann til þess að hann öðlist meiri reynslu og færni í akstri.
Kröfur til leiðbeinenda
Sá sem tekur að sér að leiðbeina í akstri þarf að hafa náð 24 ára aldri, hafa gild ökuréttindi til að stjórna þeim flokki ökutækja sem æfa á akstur með og hafa að minnsta kosti fimm ára reynslu af að aka þannig ökutæki. Hann má ekki, á undangengnum 12 mánuðum, hafa verið án ökuskírteinis eða verið refsað fyrir vítaverða aksturshætti á því tímabili. Sótt er um leyfi til leiðbeinendaþjálfunar til lögreglustjóra í heimabyggð viðkomandi á þar til gerðu eyðublaði. Þá þarf ökukennari að votta að nemandinn hafi öðlast nægilega þekkingu á umferðarreglum og þjálfun í stjórnun ökutækis til að æfa akstur með leiðbeinanda. Leiðbeinandinn þarf alltaf að hafa leyfisbréf fyrir þjálfunarakstri meðferðis og sýna það þegar og ef lögregla krefst þess.
Þegar nemandi ekur með leiðbeinanda þarf bifreiðin að vera sérstaklega merkt með skilti sem á stendur "Æfingaakstur"
. Bifreiðin þarf að vera í fullkomnu lagi, hún skoðuð og ábyrgðartrygging þarf að vera í lagi.
Leiðbeinandi þarf að afla sér sérstakrar staðfestingar hjá TM um að bifreiðin haldi ábyrgðartryggingunni, þrátt fyrir þessa notkun.
Ábyrgðin er leiðbeinandans
Leiðbeinandi telst lögum samkvæmt vera stjórnandi bifreiðarinnar með sama hætti og ökukennari. Til marks um það má geta þess að leiðbeinandi sem sinnir leiðsögn undir áhrifum áfengis sætir sömu viðurlögum og ef hann sæti sjálfur undir stýri á bifreiðinni.
Rifjaðu upp til öryggis
Leiðbeinandi þarf að kunna skil á námsefni ökunemans og kynna sér það sérstaklega áður en æfingaakstur hefst. Margt kann að hafa breyst í umferðarreglum og merkingum frá því leiðbeinandi tók ökupróf og því nauðsynlegt að fara vel yfir þau atriði. Auðveldasta leiðin til að afla sér þekkingar er að fara yfir námsefni ökunemans og kynna sér umferðarmerkingar. Þá viljum við benda leiðbeinendum á Bílpróf TM á TM vefnum. Í símaskránni má einnig glöggva sig á umferðarmerkjunum og á heimsíðu Umferðarstofu, www.us.is er einnig hægt að finna fróðlegar upplýsingar um umferðarmáll.
Helstu atriði í æfingaakstri
Nauðsynlegt er að fara yfir öll stjórntæki bifreiðarinnar, stilla spegla og önnur öryggistæki, sæti og stýri áður en lagt er af stað. Minnt skal á að ökuneminn stjórnar nú bíl sem hann þekkir ekki og er frábrugðinn þeim bíl sem ökukennarinn leggur til. Nauðsynlegt er að yfirfara ljósker og glitmerki, athuga loftþrýsting í hjólbörðum og kanna hvort hemlabúnaður og stýri virki eðlilega.
Gangi ykkur vel!
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

