Skyldutrygging
Skyldutryggingu verður hver skráningarskyldur bíll að hafa samkvæmt lögum og samanstendur sú trygging af ábyrgðar- og slysatryggingu ökumanns og eigenda. Skyldutryggingin bætir allt það tjón sem verður af völdum ökutækisins. Þá bætir hún einnig það slys sem ökumaður verður fyrir við stjórn bílsins eða sem farþegi í eigin bíl.
Hjá TM er sama iðgjald tekið fyrir alla aldurshópa og er því ekkert bónuskerfi. Í stað þess greiðir þú iðgjaldsálag að fjárhæð 25.000 krónur ef tjónsbætur í hverju tilviki eru hærri en 75.000 krónur. Iðgjaldsálagið fellur í gjalddaga um leið og TM hefur gert upp tjónið.
Hvað er bætt í skyldutryggingu?
|
Hvað er ekki bætt í skyldutryggingu?
|
Vinsamlegast athugið að þessi upptalning er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum okkar.
Frjálsar ökutækjatryggingar
Kaskótrygging ökutækja
Kaskótrygging sér um að bæta skemmdir á eigin bifreið og aukahlutum komi til tjóns. Þú velur sjálfur eigin áhættu, getur verið hvaða upphæð sem er, og greiðir síðan aðeins þá fjárhæð ef til tjóns kemur. Þá er ekkert iðgjaldsálag í kaskótryggingu og engir bakreikningar. Þá sér utanvegakaskó um að tryggja jeppa fyrir akstri á torfærðum slóðum.
Kaskótrygging tekur ekki gildi fyrr en búið er að færa bílinn til skoðunar hjá TM í Tjónaskoðunarstöð TM Hamarshöfða 2, Aðalstræti 6, eða í næsta útibúi eða umboði TM.
Hvað bætir kaskótrygging?
|
Hvað bætir kaskótrygging ekki?
|
Vinsamlegast athugið að þessi upptalning er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum okkar.
Bílrúðutrygging
Bílrúðutryggingin bætir allt eðlilegt brot á fram- hliðar og afturrúðu bílsins og kostnað við ísetningu, nema eigandi hafi valdið tjóninu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Eigin áhætta í bílrúðutjóni er 15% af heildarkostnaði.
Bílaábyrgð TM
Bílaábyrgð TM er vátrygging sem bætir viðgerðarkostnað sem rekja má til galla á framleiðslu og við samsetningu bifreiða. Hægt er að tryggja bæði nýja og notaða bíla. Bílaábyrgð á sérstaklega við þegar ábyrgð framleiðenda bílsins gildir ekki, svo sem ef bifreið er flutt til landsins frá Bandaríkjunum eða ábyrgð takmarkast við stuttan tíma. Nánari upplýsingar um bílaábyrgð.
Hálfkaskó
Hálfkaskó er ódýrari trygging með þrengra bótasvið en kaskótryggingin. Tryggingin er aðallega hugsuð fyrir bifreiða- og dráttarvélaeigendur sem aka ekki mikið í þéttbýli þar sem umferð er meiri. Nánari upplýsingar um hálfkaskó.
Iðgjaldaskrá
Iðgjald tekur mið af tegund bíls, notkun bíls og búsetu vátryggingartaka samkvæmt iðgjaldatöflu og tjónareynslu.
Kynntu þér iðgjaldaskrána, sérstaklega ákvæðið um iðgjaldsálagið.
Útfylling á tjónsskýrslum vegna umferðaróhappa
TM hefur samið við fyrirtækið Aðstoð & Öryggi (A&Ö) um aðstoð við útfyllingu á tjónaskýrslum vegna umferðaróhappa.
Þjónustan stendur til boða hvort sem viðskiptavinur TM er valdur að tjóni eða ekki. Mikilvægt er að hafa í huga að kalla verður til lögreglu ef slys verða á fólki. Fyrst í stað verður þjónustan aðeins veitt á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn er 578 9090 og eitt símtal tryggir skjótan aðgang að þjónustu A&Ö. Fulltrúi fyrirtækisins kemur á vettvang og gerir nauðsynlegar vettvangsmælingar, hjálpar til við gerð tjónaskýrslunnar og sendir hanar til TM á rafrænu formi innan sólarhrings frá því aðstoðin er veitt.Þjónustan er viðskiptavinum TM gjaldfrjáls.
Aðstoð og öryggi ehf. er sjálfstætt og hlutlaust þjónustufyrirtæki er annast vettvangsrannsóknir umferðaróhappa. Starfsmenn fyrirtækisins eru fyrrverandi lögreglumenn með mikla reynslu af því að koma að árekstrum og slysum. Þjónustan tryggir réttláta og fljótvirka afgreiðslu tjóna.
Kaskótrygging vinnuvéla
Kaskótrygging vinnuvéla bætir skemmdir á vinnuvélinni sjálfri og eðlilegum fylgihlutum hennar, svo sem grjótgrindum og venjulegum útvörðum af eldingu, eldsvoða svo og sprengingu sem stafar af honum, af áakstri, árekstri, veltu eða hrapi vinnuvélarinnar, grjóthruni, snjóflóði úr fjallshlíð og skriðufalli. Bættar eru skemmdir á vinnuvélinni vegna ofsaveðurs og vegna flutnings vinnuvélar með öðru flutningstæki á landi. Það er einnig bætt tjón vegna rúðubrota í vinnuvél. Hægt er að velja um mismunandi sjálfsáhættur.
Utanvegakaskó
Ef bifreið er sérútbúin til aksturs utan vega er innifalið í kaskótryggingunni áhætta vegna aksturs um tún, snjóskafla, á ís, yfir óbrúaðar ár eða læki, um fjörur, vegatroðninga eða aðrar vegleysur innifalin, samanber nánar grein 4.2 í skilmálum kaskótryggingar.
Kaskótrygging hjólhýsa, fellihýsa og tjaldvagna
Vátryggingin nær til tjaldvagns, fellihýsis eða hjólhýsis þess sem tilgreint er á vátryggingarskírteini ásamt eðlilegum fylgihlutum, svo sem innréttingum og öðrum föstum búnaði. Vátryggingin nær ekki til innbús og annarra lausra muna. Tryggingamiðstöðin bætir skemmdir af eldingu, eldsvoða (ef eldur verður laus) og sprengingu sem stafar af honum, af árekstri, áakstri, veltu, útafakstri eða hrapi hins vátryggða, rúðubroti, grjóthruni, snjóflóði úr fjallshlíð og skriðufalli. Þá er það einnig bætt ef því sem er vátryggt er stolið, svo og ef unnar eru skemmdir á því svo sem vegna innbrots eða tilraunar til innbrots. Skemmdir sem verða við flutning á hinu vátryggða með öðru flutningatæki á landi eru bótaskyldar. Enn fremur er það bótaskylt þegar tjaldvagn eða hjólhýsi er flutt á skipi milli hafna á Íslandi, ef flutningurinn er liður í ferðalaginu sem viðkomandi tryggði sig fyrir. Sjálfsáhætta í hverju einstöku tjóni er að lágmarki 76.000.- krónur.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

