Skyldutrygging

Skyldutrygging

Skyldutryggingu verður hver skráningarskyldur bíll að hafa samkvæmt lögum og samanstendur sú trygging af ábyrgðar- og slysatryggingu ökumanns og eigenda. Skyldutryggingin bætir allt það tjón sem verður af völdum ökutækisins. Þá bætir hún einnig það slys sem ökumaður verður fyrir við stjórn bílsins eða sem farþegi í eigin bíl.

Hjá TM er sama iðgjald tekið fyrir alla aldurshópa og er því ekkert bónuskerfi. Í stað þess greiðir þú iðgjaldsálag að fjárhæð 25.000 krónur ef tjónsbætur í hverju tilviki eru hærri en 75.000 krónur. Ef ökumaður er 23 ára eða yngri hækkar iðgjaldsálagið um 25.000 krónur á ökutækjum sem tryggð eru á einstakling. Iðgjaldsálagið fellur í gjalddaga um leið og TM hefur gert upp tjónið.

Fáðu tilboð í skyldutryggingu

Hvað er bætt í skyldutryggingu?

  • Allt tjón sem stafað getur af notkun ökutækisins er bætt, hvort sem þú keyrir á annan bíl eða mannvirki eða óvart skellir hurð bílsins í annan bíl.
  • Allir sem verða fyrir slysi af völdum ökutækisins fá bætur samkvæmt skaðabótalögum, sama hvort ökumaður bílsins er í rétti eða órétti.
  • Bíllinn þinn er tryggður þó að annar en eigandi bílsins keyri. Ökumaðurinn verður þó að keyra með vitund eiganda bílsins og hafa gilt ökuskírteini.
  • Farangur annarra en eiganda og ökumanns er bættur verði hann fyrir tjóni. Þú ert tryggður jafnvel þó að þú keyrir á aðra bifreið í þinni eigu.
  • Þú ert tryggður í akstri erlendis, EES og Sviss. Nauðsynlegt er þó að eigendur sæki grænt kort (alþjóðlegt vátryggingarkort) til tryggingafélagsins áður en haldið er af stað.

Hvað er ekki bætt í skyldutryggingu?

  • Skemmdir á eigin bíl, munum eða húsnæði eru ekki bættar.
  • Eigin verðmæti ökumanns í bílnum eru ekki bætt.
  • Ef um vítavert gáleysi eða ásetning er að ræða á TM endurkröfurétt á eiganda.
  • Ef ökumaður telst vera óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða lyfjanotkunar á TM endurkröfurétt á eiganda.

Vinsamlegast athugið að þessi upptalning er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum okkar.

Iðgjaldaskrá

Iðgjald tekur mið af tegund bíls, notkun bíls og búsetu vátryggingartaka samkvæmt iðgjaldatöflu og tjónareynslu.

Aðstoð og Öryggi (A&Ö) aðstoðar viðskiptavini TM án endurgjalds

Aðstoð og ÖryggiÞað er yfirlýst markmið okkar hjá TM að veita skjóta og réttláta þjónustu við úrlausn tjónamála. Í því skyni njóta viðskiptavinir TM þjónustu Aðstoð & Öryggi (A&Ö) við útfyllingu á tjónaskýrslum vegna umferðaróhappa, án endurgjalds.

Eitt símtal í þjónustusíma A&Ö - 578 9090 - tryggir skjótan aðgang að þjónustu A&Ö. Fulltrúi fyrirtækisins kemur á vettvang og gerir nauðsynlegar vettvangsmælingar, hjálpar til við gerð tjónaskýrslunnar og sendir hanar til TM á rafrænu formi innan sólarhrings frá því aðstoðin er veitt.

Þjónustan stendur til boða hvort sem viðskiptavinur TM er valdur að tjóni eða ekki. Mikilvægt er að hafa í huga að kalla verður til lögreglu ef slys verða á fólki. Fyrst í stað verður þjónustan aðeins veitt á höfuðborgarsvæðinu.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III