Ferðavagnar

Ferðavagnar

Á undanförnum árum hefur fjöldi ferðavagna aukist mjög mikið með stórauknum innflutningi á hjólhýsum, tjaldvögnum og fellihýsum. Oft og á tíðum liggja mikil verðmæti í þessum vögnum og getur það verið verulegt fjárhagslegt tjón fyrir fjölskyldur að missa svona vagn, til dæmis í umferðaróhappi, ef tryggingar eru ekki fyrir hendi. Því er nauðsynlegt að kaskótryggja ferðavagna.

Kaskótrygging sér um að bæta skemmdir á ferðavögnunum og aukahlutum komi til tjóns. Þú velur sjálfur eigin áhættu, getur verið hvaða upphæð sem er, og greiðir síðan aðeins þá fjárhæð ef til tjóns kemur. Ekkert iðgjaldsálag er í kaskótryggingu og engir bakreikningar.

Fáðu tilboð í kaskótryggingu ferðavagna

Hvað felst í kaskótryggingu?

  • Tryggingin bætir eigið tjón á vagninum vegna áreksturs við aðra bifreið eða kyrrstæðan hlut, veltu, útafaksturs, bruna, grjóthruns, snjóflóðs, skriðufalls og aur- og vatnsflóðs.
  • Tryggingin bætir tjón vegna þjófnaðar, innbrots eða skemmdarverka.
  • Tryggingin greiðir flutning og björgun á ökutæki eftir tjón.
  • Tryggingin bætir tjón á rúðum.

Hvað er ekki bætt með kaskótrygingu?

  • Ef um vítavert gáleysi eða ásetning er að ræða.
  • Ef ökumaður telst vera óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða lyfjanotkunar.
  • Ef tjón stafar af sandfoki eða náttúruhamförum.
  • Ef hjólabúnaður eða undirgrind skemmast í akstri á ósléttri akbraut.
  • Tryggingin bætir ekki þjófnað eða skemmdir á aukabúnaði, til dæmis hjólkoppum og ljósabúnaði.
  • Tjón af völdum skemmdarverka eða þjófnaðar erlendis fæst ekki bætt.


Vinsamlegast athugið að þessi listi er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum okkar.


Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá


 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III