Kaskótrygging

Kaskótrygging

Kaskótrygging sér um að bæta skemmdir á eigin bifreið og aukahlutum komi til tjóns. Þú velur sjálfur eigin áhættu, getur verið hvaða upphæð sem er, og greiðir síðan aðeins þá fjárhæð ef til tjóns kemur. Verði tjón á bifreiðinni vegna aksturs ökumanns hennar sem er 23 ára eða yngri og bifreiðin til einkanota, hækkar eigin áhætta um kr. 50.000.

Ekkert iðgjaldsálag er í kaskótryggingu og engir bakreikningar. Þá sér utanvegakaskó um að tryggja jeppa fyrir akstri á torfærum slóðum.

Kaskótrygging tekur ekki gildi fyrr en búið er að færa bílinn til skoðunar hjá TM í Tjónaskoðunarstöð TM Hamarshöfða 2, Síðumúla 24, eða í næsta útibú eða umboð TM.

Fáðu tilboð í kaskótryggingu

Hvað felst í kaskótryggingu:

  • Tryggingin bætir eigið tjón á bifreið vegna áreksturs við aðra bifreið eða kyrrstæðan hlut, veltu, útafaksturs, bruna, grjóthruns, snjóflóðs, skriðufalls og aur- og vatnsflóðs.
  • Tryggingin bætir tjón vegna þjófnaðar, innbrots eða skemmdarverka.
  • Tryggingin greiðir flutning og björgun á ökutæki eftir tjón.
  • Tryggingin bætir tjón á rúðum.
  • Tryggingin greiðir bílaleigubíl í allt að 5 daga verði bíllinn þinn óökufær eftir tjón.

Hvað felst ekki í kaskótryggingu:

  • Ef um vítavert gáleysi eða ásetning, svo sem ölvun við akstur eða lyfjanotkun er að ræða.
  • Ef tjón stafar af sandfoki eða náttúruhamförum.
  • Ef hjólabúnaður eða undirgrind skemmist í akstri á ósléttri akbraut.
  • Tryggingin bætir ekki þjófnað eða skemmdir á aukabúnaði, til dæmis hjólkoppum og ljósabúnaði.
  • Tjón af völdum skemmdarverka eða þjófnaðar erlendis fæst ekki bætt.
  • Utanvegakaskó bætir ekki tjón ef vatn flæðir inn í bílinn.

Kaskótrygging vinnuvéla

Kaskótrygging vinnuvéla bætir skemmdir á vinnuvélinni sjálfri og eðlilegum fylgihlutum hennar, svo sem grjótgrindum og venjulegum útvörðum af eldingu, eldsvoða svo og sprengingu sem stafar af honum, af áakstri, árekstri, veltu eða hrapi vinnuvélarinnar, grjóthruni, snjóflóði úr fjallshlíð og skriðufalli. Bættar eru skemmdir á vinnuvélinni vegna ofsaveðurs og vegna flutnings vinnuvélar með öðru flutningstæki á landi. Það er einnig bætt tjón vegna rúðubrota í vinnuvél. Hægt er að velja um mismunandi sjálfsáhættur.

Utanvegakaskó

Ef bifreið er sérútbúin til aksturs utan vega er innifalið í kaskótryggingunni áhætta vegna aksturs um tún, snjóskafla, á ís, yfir óbrúaðar ár eða læki, um fjörur, vegatroðninga eða aðrar vegleysur innifalin, samanber nánar grein 4.2 í skilmálum kaskótryggingar.

Kaskótrygging hjólhýsa, fellihýsa og tjaldvagna

Vátryggingin nær til tjaldvagns, fellihýsis eða hjólhýsis þess sem tilgreint er á vátryggingarskírteini ásamt eðlilegum fylgihlutum, svo sem innréttingum og öðrum föstum búnaði. Vátryggingin nær ekki til innbús og annarra lausra muna. Tryggingamiðstöðin bætir skemmdir af eldingu, eldsvoða (ef eldur verður laus) og sprengingu sem stafar af honum, af árekstri, áakstri, veltu, útafakstri eða hrapi hins vátryggða, rúðubroti, grjóthruni, snjóflóði úr fjallshlíð og skriðufalli. Þá er það einnig bætt ef því sem er vátryggt er stolið, svo og ef unnar eru skemmdir á því svo sem vegna innbrots eða tilraunar til innbrots. Skemmdir sem verða við flutning á hinu vátryggða með öðru flutningatæki á landi eru bótaskyldar. Enn fremur er það bótaskylt þegar tjaldvagn eða hjólhýsi er flutt á skipi milli hafna á Íslandi, ef flutningurinn er liður í ferðalaginu sem viðkomandi tryggði sig fyrir. Sjálfsáhætta í hverju einstöku tjóni er að lágmarki 76.000.- krónur.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III