TM-Öryggi

TM-Öryggi veitir þann kost að sameina allar tryggingar sem einstaklingar og fjölskyldur þurfa á að halda. Til þess að njóta TM-Öryggis og hagkvæmari kjara þarf einungis að velja saman tvær tryggingar eða fleiri. Í TM-Öryggi færðu sveigjanlega og persónulega þjónustu og getur valið þinn eigin tryggingaráðgjafa auk þess að fá góða yfirsýn yfir tryggingamálin.

Hagkvæm kjör

Í TM-ÖRYGGI getur þú tryggt þig og fjölskyldu þína með hagkvæmum kjörum. TM-ÖRYGGI veitir 10% viðbótarafslátt af öllum tryggingum auk lægri lántökugjalda af lánum. Einnig er veittur viðbótarafsláttur vegna tjónlauss árs.

Sveigjanlegur greiðslumáti

TM-ÖRYGGI endurnýjast einu sinni á ári á þeim degi sem hentar þér best. Iðgjöldin má greiða mánaðarlega með boðgreiðslu eða beingreiðslu hjá banka eða sparisjóði. Þeir sem eru í TM-ÖRYGGI greiða lægri kostnað við að skipta greiðslum á bein- eða boðgreiðslusamningi en aðrir (11% í stað 15%).

Persónuleg þjónusta

Í TM-ÖRYGGI eru samskiptin við tryggingafélagið þægileg og persónuleg. Þú færð meðal annars þinn eigin tryggingaráðgjafa, sjúkrapúða, möppu utan um öll tryggingagögnin og ítarlegt yfirlit að minnsta kosti einu sinni á ári. Þannig færð þú góða yfirsýn yfir öll tryggingamál fjölskyldunnar.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III