Greiðsluúrræði
Úrræði vegna greiðsluerfiðleika með bílalán
TM kemur til móts við viðskiptavini sína sem lent hafa í erfiðleikum með að greiða af bílalánum hjá félaginu á þann hátt sem að neðan greinir.
Athugið að bílalán TM eru eingöngu í íslenskum krónum.
Greiðslujöfnun
Greiðslujöfnun nær til verðtryggðra bílalána TM sem tekin voru fyrir 1. október 2008 og verður í boði til ársloka 2010. Úrræðið nær til einstaklinga, ekki fyrirtækja eða félaga.
Með greiðslujöfnun er greiðslubyrði af láni færð til þess sem var í maí 2008 og fylgir svo greiðslujöfnunarvísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út.
Verði eftirstöðvar af láni í lok lánstíma, framlengist lánið í allt að 3 ár með sömu greiðslubyrði. Verði enn eftirstöðvar á láni þegar 3 ár eru liðin umfram núverandi lánstíma, býðst lántaka að létta veði af bifreiðinni með því að greiða lánið upp að fullu, eða afsala sér bifreiðinni til TM án frekari kvaða.
Lánið þarf að vera í skilum og umsókn þarf að hafa borist TM fyrir 20. dag mánaðar til að taka gildi í næsta mánuði á eftir.
Frysting
Frysting lána felur í sér að vextir og kostnaður greiðist áfram mánaðarlega, en afborgun af höfuðstól frestast í allt að 6 mánuði. Frestaður höfuðstóll dreifist síðan með þeim afborgunum sem eftir eru þegar frystingu lýkur. Lánið lengist ekki við þessa aðgerð og þarf að vera í skilum.
Skuldbreyting
Ef lán eru komin í vanskil býður TM skuldbreytingu á þeim þannig að 1/3 hluti vanskila að lágmarki greiðist. Eftirstöðvar vanskila bætast við ógreiddan höfuðstól og dreifast með þeim afborgunum sem eftir eru. Lánið lengist ekki við þessa aðgerð.
Nánari upplýsingar um greiðsluúrræði veita starfsmenn TM í síma 515 2000.

