Lánareglur

Tryggingamiðstöðin hf. veitir viðskiptavinum sínum lán til bifreiðakaupa með eftirtöldum skilyrðum:

  • Notaður bíll má elstur vera 72 mánaða.
  • Hæsta lán er allt að 60% af kaupverði nýrra bifreiða miðað við hámarkslánstíma. Lánshlutfall lækkar eftir því sem bíllinn er eldri.
  • Lánstíminn er lengstur 7 ár vegna nýrra bíla, 6 ár á notuðum bílum og styttist eftir aldri bílsins. Lántakandinn verður að hafa staðið í skilum með iðgjöld og önnur þau viðskipti sem hann hefur átt við TM.
  • TM tekur fyrsta veðrétt í ökutækinu. Lántakendur sem ekki hafa náð 25 ára aldri og eru ekki fasteignaeigendur þurfa ábyrgðarmann sem er fasteignaeigandi. Einnig er farið fram á ábyrgðarmann hjá einkahlutafélögum.
  • Bifreiðin verður að vera ábyrgðar- og kaskótryggð hjá TM allan lánstímann.
  • Vextir af láninu geta breyst mánaðarlega og munu fylgja vaxtaskrá TM.
  • Lánið er greitt út þegar félagið hefur fengið í hendur afrit af afsali bílsins og lántakandi er orðinn skráður eigandi ökutækisins.
  • Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III