Fréttir
Bílpróf TM uppfært
Bílpróf TM, æfingarprófið hér á TM.is, hefur nú fengið yfirhalningu. Spurningarnar hafa verið vandlega yfirfarnar af þremur ökukennurum og uppfærðar í ljósi breytinga á umferðarlögum. Nýjum spurningum var bætt við og eldri spurningum breytt í takt við ný lög. Spurningarnar í æfingarprófinu eru alls um 300 talsins og hafa verið yfirfarnar af Umferðarráði.
Prófið er alveg eins uppbyggt og raunverulega skriflega bílprófið, eða samtals 30 spurningar. Hver spurning er krossaspurning og getur verið um fleiri en einn möguleika að ræða. Þegar þú hefur spreytt þig birtist svarið við spurningunni er sýnir hvað var rétt og rangt. Einnig er hægt að hlusta á hverja spurningu, sem hentar þeim sem taka bílprófið munnlega. Þá er spurningin lesin ásamt svörunum.
Prófinu er skipt í A og B hluta, 15 spurningar í hvorum hluta og máttu aðeins vera með tvær villur í A hluta. Þú stenst ekki prófið ef þú gerir fleiri en sjö villur í heild. Það telst villa ef kross vantar eða honum er ofaukið. Þá birtast stigin, fjöldi villa og hvaða einkunn þú ert komin/n með.

