Kolsýrlingur er litlaust og lyktarlaust eiturgas sem getur myndast við brennslu/notkun jarðefnaeldsneytis svo sem gas, olíu, bensín, viðarkubba og grillkola. Þar sem aðstæður eru að opinn eldur er notaður til kyndingar ætti að koma fyrir kolsýrlingsskynjara.
Reykskynjarar geta bjargað lífi þínu! Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem ættu að vera á hverju heimili. Skerandi vælið í þeim getur bjargað mannslífum.
Til eru margar gerðir slökkvitækja sem hafa má á heimilum. Mikilvægt er að allir á heimilinu viti hvar slökkvitæki eru geymd og hvernig á að beita þeim. Slökkvitæki ber að yfirfara árlega af viðurkenndum þjónustuaðilum.
Skynjaranum er komið fyrir niður við gólf þar sem vænta má vatns, ef neminn skynjar vatn gefur skynjarinn frá sér hljóðmerki (85 desibel)
Lykt af gasi er lítil sem engin og því getur gas lekið út í andrúmsloftið án þess að við verðum þess vör. Lítill neisti getur hæglega framkallað sprengingu, svo ekki sé talað um hættuna sem hlýst af því þegar gasleki verður þegar fólk er í fastasvefni.
Hentar vel þar sem ekki er hægt að nota reykskynjara vegna væntanlegra villuboða svo sem í bílageymslu, sorpgeymslu og þvottahús. Ýmis efni og efnasambönd geta gefið villuboð í reykskynjara svo sem útblástur bifreiða, gufa, efnabreytingar í sorpgeymslum og fleira.
Eldvarnarteppi eru ómissandi í eldhús og eiga að hanga uppi, en ekki liggja inni í skáp.
A22 GSM öryggis og vöktunarkerfið er góður kostur fyrir þá sem vilja fylgjast með eignum sínum sjálfir og stjórna aðgerðum án þess að vera á staðnum.
Res-Q-Ladder. Keðjustigar eru úr stáli í tveimur lengdum fyrir 2 hæðir og 3 hæðir fyrir heimili og sumarhús. Tveggja hæða stiginn er 4,57 metrar, en þriggja hæða er 7,62 metrar.
Í boði eru 4 mismunandi forvarnarpakkar.