Beint í leiðakerfi
SSA-C-01 Kolsýrlingsskynjari 9V með prufuhnapp og gaumljósi. Skynjar aukningu á kolsýrlingi í andrúmslofti. Vandaðar leiðbeiningar á íslensku fylgja. Kolsýrlingur er litlaust og lyktarlaust eiturgas sem getur myndast við brennslu/notkun jarðefnaeldsneytis svo sem gas, olíu, bensín, viðarkubba og grillkola. Þar sem aðstæður eru að opinn eldur er notaður til kyndingar ætti að koma fyrir kolsýrlingsskynjara. Í sumarhús og skála er nauðsynlegt að setja kolsýrlingsskynjara. Athugið: Kolsýrlingsskynjari er hvorki reykskynjari né hefðbundinn gasskynjari og kemur ekki í stað slíkra. Vörunúmer: 305210 Athugið: Ef ætlunin er að panta vöruna í póstkröfu þarf að leggja inná reikning Eldvarnamiðstöðvarinnar (bankanúmer: 101-26-1478. Kennitala 500269-3759).
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Karfan þín er tóm.
Hafa samband 515 2000
Neyðarnúmer TM800 6700