Um Netverslun TM
Tryggingamiðstöðin býður viðskiptavinum sínum uppá öryggisvörur á hagstæðari kjörum en gerist og gengur. Viðskiptavinir TM geta verslað vörurnar í gegnum vefinn og fengið þær sendar heim sér að kostnaðarlausu. Hægt að greiða með VISA og MasterCard. Allar pantanir eru dulkóðaðar.
Netverslun TM starfar samkvæmt Siðareglum SVÞ. Þeir viðskiptavinir sem hafa ekki aðgang að netinu geta pantað vörur með því að hringja til TM í síma 515 2000. Netfang netverslunarinnar er netverslun@tm.is. TM ber enga ábyrgð á gæðum varanna né hugsanlegum framleiðslugöllum.
Samstarfsaðilar TM eru Eldvarnamiðstöðin, BabySam, GÁ Pétursson , SVAR-tækni, Boðtækni og Nortek. Sjá nánari upplýsingar um samtarfsaðilana.
Allar vörur eru sendar með Íslandspósti hvert á land sem er. Íslandspóstur fer með allar pantanir heim að dyrum til 95% landsmanna og eru þær bornar út á milli klukkan 17 og 22.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

