A
-
ABÍ:
Stytting á orðinu Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf. Samkvæmt lögum er öllum vátryggingafélögum, sem hér á landi hafa með höndum lögbundnar ökutækjatryggingar, skylt að eiga aðild að ABÍ.
-
Afnotamissir ökutækis:
Bætur fyrir missi ökutækis meðan það er til viðgerðar eftir umferðaróhapp. Greidd er tiltekin fjárhæð fyrir hvern dag sem viðgerð tekur og er þá jafnan miðað við eðlilegan viðgerðartíma. Oft er tjónþola útvegaður bílaleigubíll meðan á viðgerð stendur.
-
Afskráður bíll:
Er sá bíll sem hefur til dæmis vegna tjóns verið afskráður sem ónýtur þar sem ekki er talið svara kostnaði að gera við hann. Undir þessum kringumstæðum eru skráningarnúmer tekin af bílnum og þeim skilað til Umferðarstofu.
-
Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf (ABÍ):
Stofnaðar árið 1970. Hlutverk þeirra í hnotskurn:
- Sjá um uppgjör tjóna sem ökutæki sem skráð eru erlendis kunna að valda hér á landi.
- Sjá íslensku bifreiðatryggingafélögunum fyrir alþjóðlegum vátryggingakortum (grænum kortum) og ábyrgjast skuldbindingar vegna aksturs íslenskra ökutækja í ríkjum, sem aðild eiga að samstarfi um græna kortið.
- Annast/ábyrgjast uppgjör tjóna af völdum óvátryggðra ökutækja.
- Gegnir hlutverki upplýsinga- og tjónsuppgjörsmiðstöðvar samkvæmt ákvæðum umferðarlaga.
-
ALT texti:
ALT texti: Guli borðinn með texta sem birtist þegar notendur fara með músarbendilinn yfir mynd á vefsíðu (athugið að þetta birtist ekki í Mozilla Firefox). ALT texti er mikilvægur fyrir blinda notendur sem nota skjálesara.
-
Asahláka:
Þegar mikið vatnsmagn safnast skyndilega fyrir af völdum snjóbráðar (asahláku) þannig að jarðvegsniðurföll leiða það ekki frá.
-
Auðlesið efni:
Auðlesið efni í boði. Ætlað til dæmis þeim sem vilja einfaldari texta. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að hafa takmarkaðan málþroska og málskilning. Textinn er því hannaður þannig að hann er einfaldur og auðskiljanlegur og samsettum orðum er skipt. Þá er letrið einnig stærra. Einnig er reynt að hafa efnið myndrænt.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

