Fyrirsagnalisti
Gleðileg jól
Starfsfólk TM óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir árið sem er að líða.
Lesa meira
TM-Líf
Líftryggingamiðstöðin hf. TM-Líf mun reka sína starfsemi á skrifstofum Tryggingamiðstöðvarinnar og hefja sölu líftrygginga frá næstu áramótum. Tryggingaráðgjafar TM munu bæði sinna ráðgjöf og sölu trygginga fyrir TM og TM-Líf.
Lesa meira
Breytingar á eignatryggingum
Í kjölfar aukins tjónaþunga undanfarin ár, hafa verið gerðar nokkrar breytingar á iðgjaldaskrám eignatrygginga ásamt breytingum á skilmála Fjölskyldutryggingar.
Lesa meira
Fjölskyldutrygging
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á skilmálum Fjölskyldutryggingar og taka þær gildi frá og með 1. janúar næstkomandi. Við biðjum viðskiptavini félagsins að kynna sér nýju skilmálana og hafa samband við söludeild einstaklingstrygginga eða næsta umboðsmann, óski þeir frekari skýringa.
Lesa meira
9 mánaða uppgjör TM 2002
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hefur á stjórnarfundi þann 21. nóvember samþykkt árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2002. Hagnaður tímabilsins nam 173 miljónir króna.
Lesa meira
Báðar hendur á stýri!
Þann 1. nóvember sl. var byrjað að sekta ökumenn sem eru staðnir að því að nota farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar. Í Netverslun TM er hægt að fá handfrjálsan búnað á sértilboði til áramóta.
Lesa meira
Forvarnarverðlaun TM 2002
Hótel Óðinsvé hlaut forvarnarverðlaun TM 2002, Varðbergið, en verðlaunin voru afhent í fjórða skiptið fimmtudaginn 31. október síðastliðinn. Jafnframt var tveimur öðrum fyrirtækjum veitt sérstök viðurkenning fyrir forvarnir en þau eru Ljósvirki ehf. og Rydenskaffi hf.
Lesa meira
Hugum að forvörnum!
Netverslun TM býður viðskiptavinum slökkvibúnað fyrir sjónvörp á sérstöku tilboði sem gildir til 15. nóvember 2002. Einnig býðst frí ísetning á tækinu til 15. nóvember. Að auki býður Netverslun TM aðrar öryggisvörur fyrir heimilið á hagstæðu verði.
Lesa meira
Reiknivél TM
Nú getur þú reiknað út á TM vefnum hvað það kostar að tryggja hjá TM. Þú velur þær tryggingar sem þér henta og sérð strax iðgjöldin og getur beðið um tilboð í þær tryggingar.
Lesa meira
Bílpróf TM
Nú getur þú æft þig fyrir bílprófið á TM vefnum. Spurningarnar eru um 300 talsins og eru samdar af ökukennara og hafa verið yfirfarnar af Umferðarráði.
Lesa meira
Líftryggingamiðstöðin hf.
Tryggingamiðstöðin hefur stofnað líftryggingafélag, Líftryggingamiðstöðina hf. Stjórn félagsins skipa Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson formaður, Einar Sigurðsson varaformaður
Lesa meira
TM á Íslensku Sjávarútvegssýningunni 2002
Tryggingamiðstöðin var með kynningarbás á Íslensku Sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Smáranum í Kópavogi dagana 4. - 7. september síðastliðinn.
Lesa meira
Árshlutauppgjör janúar - júní 2002
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. samþykkti á stjórnarfundi þann 20. ágúst síðastliðinn árshlutareikning fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2002. Hagnaður samstæðunnar á tímabilinu var 152 milljónir króna.
Lesa meira
Netverslun TM
Opnuð hefur verið netverslun með öryggisvörur fyrir viðskiptavini Tryggingamiðstöðvarinnar á TM vefnum. Um er að ræða öryggisvörur á hagstæðari kjörum en gengur og gerist og eru þær sendar með Íslandspósti viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Lesa meira
Varnir gegn innbrotum
Sumarleyfistíminn er genginn í garð og fólk er farið að huga að ferðalögum. Því fylgir lengri eða skemmri dvöl fjarri híbýlum sínum. Reynslan sýnir að hætta á innbrotum í íbúðarhúsnæði vex um þetta leyti.
Lesa meira
Guðrún Gísladóttir KE-15
Að morgni 19.06.2002 sökk fjölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir KE-15 við Lófóten í Noregi. Skipið er tryggt hjá Tryggingamiðstöðinni hf.
Lesa meira
Strætó bs. semur við TM
Nýverið var undirritaður samningur á milli Innkaupastofnunar Reykjavíkur fyrir hönd Strætó bs. og Tryggingamiðstöðavarinnar hf. um vátryggingar strætisvagnanna.
Lesa meira
Styrkur til björgunarsveitarinnar Tinda í Hnífsdal
Björgunarsveitin Tindar í Hnífsdal fékk að gjöf frá Tryggingamiðstöðinni hf. skjávarpa að verðmæti 300.000.- krónur. Formleg afhending var laugardaginn 18. maí síðastliðinn í húsi björgunarsveitarinnar.
Lesa meira
3 mánaða uppgjör TM 2002
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. hefur á stjórnarfundi þann 8. maí síðastliðinn samþykkt árshlutareikning fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2002. Hagnaður tímabilsins nam 113,4 milljónir króna.
Lesa meira
Breytingar á útibúum og umboðum
Tryggingamiðstöðin hf. í Reykjanesbæ flutti í nýtt húsnæði að Hafnargötu 31 þann 5. apríl sl.
Einnig hafa orðið breytingar á Blönduósi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Hvammstanga, Reyðarfirði og Patreksfirði, þar sem nýir umboðsmenn hafa tekið við störfum fyrir hönd TM.
Lesa meira
Aðalfundur TM 2002
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. var haldinn þriðjudaginn 19. mars klukkan 16:00 í Sunnusal, Radisson SAS Saga Hótel, Reykjavík.
Lesa meira
Foss á höfuðstöðvar TM
Skógarfossi verður varpað aftur á Aðalstræti 6 höfuðstöðvar TM, laugardaginn 9. mars frá klukkan 20:00-24:00, vegna fjölda áskorana. Þeir sem misstu af sýningunni um síðustu helgi eru hvattir til að mæta og skoða fossinn með tilheyrandi fossanið.
Lesa meira
Afkoma TM 2001
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. samþykkti á stjórnarfundi þann 26. febrúar síðastliðinn ársreikning fyrir árið 2001. Aðalfundur TM verður haldinn þriðjudaginn 19. mars næstkomandi í Sunnusal Hótel Sögu og hefst klukkan 16.
Lesa meira
Hækkun á bónus kaskótryggingar
Í lok janúar hækkaði hámarksbónus kaskótrygginga hjá einstaklingum sem eru í TM-Öryggi úr 50% í 55% en það samsvarar um 10% lækkun á iðgjaldi.
Lesa meira

