Fréttir

Fyrirsagnalisti

Gleðileg jól 2007

22.12.2008 : Opnunartímar TM um jól og áramót

Opnunartími Tryggingamiðstöðvarinnar um jól og áramót eru eftirfarandi. Lesa meira
 
Merki TM

17.12.2008 : TM hefur starfsemi í Færeyjum

Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) hefur, fyrst erlendra tryggingafélaga, verið veitt starfsleyfi í Færeyjum. Lesa meira
 
Rafhlaða í reykskynjara

12.12.2008 : Fullt hús af öryggi

TM sendir rafhlöður í reykskynjara til allra viðskiptavina sinna í TM-Öryggi og vill með því árétta mikilvægi reykskynjara sem eitt mikilvægasta öryggistæki heimilisins. Lesa meira
 
Merki TM

11.12.2008 : TM biður fólk að gæta að lausamunum vegna stormviðvörunar

Veðurstofa Íslands hefur varað við stormi um landið vestanvert undir kvöld, yfirleitt á bilinu 10-18 metra á sekúndu. Lesa meira
 
Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir frá TM afhendir Önnu Ólafíu Sigurðardóttir, sviðsstjóra hjúkrunar styrkinn frá TM í Leikstofu Barnaspítalans. Á myndinni lengst til hægri er Margrét Lára Viðarsdóttir.

11.12.2008 : TM styrkir barnaspítala Hringsins

Tryggingamiðstöðin hf. (TM) ákvað að þessu sinni að senda ekki jólakort til viðskiptavina sinna og velunnara, heldur verja þeirri fjárhæð sem þannig sparaðist til að styrkja gott málefni. Að þessu sinni var ákveðið að styrkja barnaspítala Hringsins. Lesa meira
 
Merki TM

24.11.2008 : TM styður Eldvarnarviku LSS

Árlegt eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs - og sjúkraflutningamanna (LSS) hefst í dag, mánudaginn 24. nóvember. Lesa meira
 
TM logo 72 punkta 191x138 gif skrá

12.11.2008 : TM undirritar viljayfirlýsingu um sölu á Nemi

Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur undirritað viljayfirlýsingu um sölu norska dótturfélagsins Nemi Forsikring ASA (Nemi) til W.R Berkley Corporation (www.wrberkley.com) (NYSE: WRB). Lesa meira
 
Merki TM

4.11.2008 : Vegna fréttar Morgunblaðsins

Vegna fréttar Morgunblaðsins þann 30. október um að FME sé með vátryggingafélögin í nákvæmri skoðun vill stjórn Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. taka fram að eignir félagsins á móti vátryggingaskuld eru nægar og tryggar. Lesa meira
 
Umboð TM á Akranesi

3.11.2008 : Nýtt umboð TM á Akranesi

Það er Tryggingamiðstöðinni (TM) sönn ánægja að tilkynna að Omnis ehf. hefur tekið við umboði TM á Akranesi frá og með mánudeginum 3. nóvember 2008. Lesa meira
 
Sonja Sif Jóhannsdóttir forvarnarfulltrúi TM og sigurvegarinn Freyr Hákonarson að taka við verðlaunum.

17.10.2008 : Róðrakeppni TM á sjávarútvegssýningunni 2008

TM bauð gestum að taka þátt í róðrakeppni á sjávarútvegssýningunni 2008 í Smáranum í lok september. Þetta var liður í að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar í tengslum við íhlutunarverkefni TM varðandi heilsufar sjómanna. Lesa meira
 
Merki TM

14.10.2008 : Sinnum því sem mestu máli skiptir

Fyrirlestur Þórkötlu Aðalsteinsdóttur, sálfræðings. Starfsfólk TM hefur yfir 50 ára reynslu af því að styðja fólk í gegnum áföll og erfiðleika. Lesa meira
 
Merki TM

8.10.2008 : TM biður fólk að gæta að lausamunum vegna stormviðvörunar

Veðurstofa Íslands hefur varað við stormi SV -lands í fyrramálið, fimmtudaginn 9.október. Lesa meira
 
Merki TM

1.10.2008 : TM á Sjávarútvegssýningu 2008

Sjávarútvegssýningin 2008 verður haldin dagana 2. - 4. október í Smáranum og mun Tryggingamiðstöðin (TM) að sjálfsögðu taka þátt í þessari víðfrægu sýningu sem haldin er á þriggja ára fresti. Lesa meira
 
Merki TM

1.10.2008 : TM gaf tjónabíl til slökkviliðsins

Slökkvilið Reykjavíkur hafði samband við Tryggingamiðstöðina og óskaði eftir að fá gefins tjónabíl til æfinga á svokallaðri norskri aðferð. Lesa meira
 
Margrét Lára Viðarsdóttir skallar boltann

26.9.2008 : Stelpurnar okkar

Tryggingamiðstöðin er stolt af því að bjóða landsmönnum uppá landsleik Íslands og Frakklands sem sýndur verður á RÚV laugardaginn 27.september. Lesa meira
 
4 blindrahundar

15.9.2008 : TM styrkir Blindrafélagið

Þann 12. september síðastliðinn voru 4 leiðsöguhundar fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga afhentir notendum sínum við hátíðlega athöfn í húsakynnum Blindrafélagsins að Hamrahlíð. Lesa meira
 
TM logoið

29.8.2008 : Sex mánaða uppgjör 2008

130 m.kr. tap á öðrum ársfjórðungi samanborið við 3.271 m.kr. tap á fyrsta ársfjórðungi 2008. Lesa meira
 
Menningarnótt 2008

20.8.2008 : Komdu í heimsreisu á Menningarnótt

TM og Alþjóðahúsið standa saman að veglegri dagskrá á Menningarnótt.
Í Aðalstræti 6 verður sett upp töfraveröld þar sem fólki gefst kostur á að fara í ferðalag um heiminn. Lesa meira
 
TM logoið

20.8.2008 : Starfsmenn TM hlaupa til góðs

Í tilefni af Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem fram fer laugardaginn 23. ágúst hvetur TM alla starfsmenn sína til að taka þátt og hlaupa til góðs. Lesa meira
 
Myndir frá uppbyggingu Þjóðhátíðarmannvirkja í Eyjum 2008

14.8.2008 : Myndir frá uppbyggingu Þjóðhátíðarmannvirkja

TM styrkti sem kunnugt er eyjamenn í að byggja upp aðstöðuna fyrir hina rómuðu þjóðhátíð sem haldin er árlega, en öll mannvirki skemmdust í eldsvoða fyrr í sumar. Lesa meira
 
Lið HK á Pæjumóti TM á Siglufirði 2008

12.8.2008 : Myndir og úrslit Pæjumótsins á Siglufirði

Pæjumóti TM á Siglufirði lauk á sunnudaginn 10. ágúst með verðlaunaafhendingu.
Mótið gekk í alla staði vel og ekki skemmdi gott veður fyrir. Lesa meira
 
Margrét Lára Viðarsdóttir íþróttamaður ársins 2007

7.8.2008 : Pæjumót TM á Siglufirði

Pæjumót TM á Siglufirði verður haldið núna um helgina 8.-10. ágúst. Þátttaka í ár er mjög góð sem endranær. Lesa meira
 
Merki TM

17.7.2008 : Elísabet – Vörumerki Tryggingamiðstöðvarinnar

Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna daga um vátryggingar sem veittar eru á vefnum elisabet.is skal tekið fram að Elísabet er vörumerki í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og er vettvangur félagsins við sölu vátrygginga um netið. Elísabet er ekki tryggingafélag heldur einungis vörumerki sem Tryggingamiðstöðin notar í áðurnefndum tilgangi. Lesa meira
 
Merki TM

14.7.2008 : TM styrkir Eyjamenn til uppbyggingar Þjóðhátíðar mannvirkja.

Tryggingamiðstöðin (TM) hefur ákveðið að styrkja aðstandendur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum til uppbyggingar á þeim mannvirkjum sem skemmdust eða eyðilögðust í eldsvoða í lok maí. Lesa meira
 

4.7.2008 : Ný Sumarhúsatrygging TM

Sumarhúsatrygging TM er sett upp á 3 vegu, TM1 sem er takmörkuð trygging með hárri eigin áhættu, TM2 og TM3 sem eru víðtækar tryggingar með miklum valmöguleikum með mismunandi eigin áhættum. Lesa meira
 
Margrét Lára Viðarsdóttir heldur í netið á marki

27.6.2008 : Ný og glæsileg heimasíða Margrétar Láru – www.mlv.is

Margrét Lára og Tryggingamiðstöðin (TM) hafa opnað nýja og glæsilega heimasíðu sem er helguð knattspyrnugoðinu Margréti Láru. Lesa meira
 
Glaðbeittur hópur fáksmanna í nýjum og hlýjum TM peysum. Tilbúnir á Landsmót 2008 á Gaddstaðaflötum.

26.6.2008 : TM gefur Landsmótsförum Fáks glæsilegar peysur

TM hefur verið í nánu samstarfi við hestamannafélagið Fák og styrkti meðal annars framkvæmd úrtökumóts Fáks fyrir Landsmótið. Lesa meira
 
TM reiðhjólahjálmur

23.6.2008 : TM gefur reiðhjólahjálma

Vodafone dreifði í samstarfi við TM 400 reiðhjólum og reiðhjólahjálmum á 13 sveitarfélög á landsbyggðinni síðastliðin laugardag. Lesa meira
 
Þjálfari fer með lið sitt inná völlinn

18.6.2008 : Pæjumóti TM í Eyjum lokið

Pæjumóti TM lauk laugardaginn 14. júní en almenn ánægja var með mótið og gekk það mjög vel að sögn mótstjórnenda. Lesa meira
 
Margrét Lára Viðarsdóttir heldur í netið á marki

12.6.2008 : Pæjumót TM í Eyjum

Í dag fimmtudaginn 12.júní hefst Pæjumót TM í Vestmannaeyjum. Frábær þátttaka er á mótinu í ár og von er á mikilli og góðri stemmningu eins og undanfarin ár. Lesa meira
 
Merki TM

6.6.2008 : Yfirlýsing frá TM í kjölfar lækkunar á lágmarki eigin áhættu

Í framhaldi af þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka lágmark eigin áhættu í tjónum sem Viðlagatrygging Íslands bætir úr 85.000 krónum í 20.000 í kjölfar Suðurlandsskjálftans vill Tryggingamiðstöðin koma eftirfarandi á framfæri. Lesa meira
 
TM gæðingamót Fáks 2008

5.6.2008 : Myndir frá TM gæðingamót Fáks

Nú á dögunum var haldið TM gæðingamót Fáks í Víðidal en mót þetta var úrtaka fyrir landsmót hestamanna. Lesa meira
 

30.5.2008 : Viðbrögð við tjóni vegna jarðskjálfta þann 29. maí 2008

Tryggingamiðstöðin (TM) hefur hrundið af stað viðbragðsáætlun vegna jarðskjálftans á Suðurlandi þann 29. maí 2008. Lesa meira
 
Árni Guðmundssson mótsstjóri gæðingamóts Fáks, Erna Kristjánsdóttir vörustjóri hjá TM og Bjarni Finnsson  formaður Fáks við undirritunina.

13.5.2008 : TM aðalstyrktaraðili Gæðingamóts Fáks

Tryggingamiðstöðin (TM) og Fákur undirrituðu í dag samstarfssamning er snýr að Gæðingamóti Fáks. Mótið mun samkvæmt samningnum nefnast TM Gæðingamót Fáks og verður haldið dagana 29. maí til 1. júní næstkomandi, á félagssvæði Fáks í Víðidal. Lesa meira
 
Sigurður Viðarsson forstjóri TM og Lúðvík Þorgeirsson formaður FRAM undirrita samninginn

13.5.2008 : FRAM og TM undirrita samstarfssamning

Úrvalsdeildarlið FRAM og Tryggingamiðstöðin skrifuðu undir samstarfssamning síðastliðinn föstudag sem snýr að knattspyrnudeild félagsins. Lesa meira
 
Ómar Þ. Pálmason forstöðumaður Aðstoðar og öryggis ehf. og Kjartan Vilhjálmsson framkvæmdastjóri tjónaþjónustu hjá TM skrifa undir samninginn.

9.5.2008 : Viðskiptavinir TM fá aðstoð við að fylla út tjónaskýrslur

Tryggingamiðstöðin (TM) hefur samið við fyrirtækið Aðstoð og öryggi (A&Ö) um hjálp við útfyllingu á tjónaskýrslum vegna umferðaróhappa. Lesa meira
 
Merki TM

9.5.2008 : 3.271 m.kr. tap Tryggingamiðstöðvarinnar

Tap ársfjórðungsins nam 3.271 m.kr. en hagnaður á sama tíma í fyrra var 886 m.kr. Lesa meira
 
Íþróttamót TM og Mána 2008

6.5.2008 : Íþróttamót TM og Mána

Tryggingamiðstöðin (TM) var aðalstyrktaraðili hestamannafélagsins Mána í opnu Íþróttamóti TM og Mána dagana 25.-27. apríl síðastliðinn. Mótið var eitt það glæsilegasta sem haldið hefur verið hjá félaginu. Lesa meira
 
Júlíus S. Ólafsson forstjóri Ríkiskaupa og Sigurður Viðarsson forstjóri TM við undirritun samningsins.

5.5.2008 : TM tryggir ökutæki ríkisins

Tryggingamiðstöðin (TM) og Ríkiskaup gengu nýlega frá samningi sem felur í sér að TM tryggir skráningarskyld ökutæki í eigu ríkisins lögboðinni ökutækjatryggingu. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs. Lesa meira
 
Loftur Magnússon svæðisstjóri TM á Austurlandi afhendir Ingigerði Benediktsdóttur gjafabréf fyrir Evrópuferð

15.4.2008 : Vinningshafar í happdrætti TM á Austurlandi

Í tilefni af opnun nýs útibús TM á Egilsstöðum í byrjun marsmánaðar var boðið upp á happdrætti í útibúinu og öllum umboðum TM á Austurlandi. Lesa meira
 
TM logoið

9.4.2008 : TM bregst við gagnrýni á þjónustu

Í kjölfar umræðu undanfarna daga um viðbrögð TM vegna slyss sem varð á Ítalíu í liðinni páskaviku vill félagið koma eftirfarandi á framfæri. Lesa meira
 
TM logoið

3.4.2008 : Lesendabréf um TM og VISA í Morgunblaðinu

Vegna baksíðufréttar og greinar í Morgunblaðinu í dag þar sem TM og VISA eru gagnrýnd fyrir að hafa ekki veitt viðskiptavini fullnægjandi neyðarþjónustu hafa fyrirtækin sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Lesa meira
 
Merki Glitnis

2.4.2008 : Glitnir semur við TM

Nýlega var gengið frá samkomulagi á milli Glitnis og Tryggingamiðstöðvarinnar hf. um að félagið taki að sér ferðatryggingar korthafa vegna VISA og MasterCard kreditkorta útgefnum af Glitni. Lesa meira
 
Skipurit TM í apríl 2008

2.4.2008 : Tryggingamiðstöðin kynnir nýtt skipurit félagsins

Í kjölfar stefnumótunarvinnu sem fram hefur farið innan TM að undanförnu hafa nokkrar breytingar orðið á skipuriti félagsins. Lesa meira
 
Hjálmar Sigurþórsson frá Tryggingamiðstöðinni,  Ólafur Proppé rektor Kennaraháskóla Íslands, Erlingur Jóhannsson frá  Kennaraháskóla Íslands.

10.3.2008 : Rannsókn á heilsufari sjómanna

Rannsóknarstofa í íþrótta- og heilsufræðum við Kennaraháskóla Íslands og Tryggingamiðstöðin hafa undirritað samstarfssamning vegna rannsóknar sem Sonja Sif Jóhannsdóttir hefur unnið sem rannsóknarverkefni í meistaranámi í íþrótta og heilsufræðum. Lesa meira
 
TM logoið

6.3.2008 : TM opnar nýtt útibú á Egilsstöðum

Föstudaginn 7. mars opnar TM nýtt og glæsilegt útibú að Miðvangi 2-4 á Egilsstöðum. Starfsmenn útibúsins eru tveir, Loftur Magnússon, sem jafnframt er svæðisstjóri TM á Austurlandi, og Kristín Hólm Þorleifsdóttir. Lesa meira
 
TM logoið

25.2.2008 : Aðalfundur 2008

Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn mánudaginn 3. mars 2008 klukkan 14.00 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavík. Lesa meira
 
Sigmar Scheving forstöðumaður einstaklingsviðskipta TM ásamt Þórkötlu Aðalsteinsdóttur og Einari Gylfa Jónssyni hjá Lífi og sál.

21.2.2008 : Áfallahjálp TM

Tryggingamiðstöðin býður áfallahjálp fyrst íslenskra tryggingafélaga. Lesa meira
 
TM logoið

14.2.2008 : Afkoma TM 2007

Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar samþykkti á stjórnarfundi þann 13. febrúar síðastliðinn ársreikning fyrir árið 2007. Hagnaður félagsins á árinu 2007 nam 4.375 m.kr. Lesa meira
 
Börn úr 3. bekk grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu með verðlaunin sín.

12.2.2008 : Verðlaun í Eldvarnagetraun LSS og TM

Fríður hópur barna úr 3. bekk grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu fékk afhent verðlaun fyrir þátttöku sína í Eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við athöfn sem fram fór í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í gær í tilefni af 112-deginum. Lesa meira
 
Ánægjuvog tryggingafélaga 2000-2007

6.2.2008 : Viðskiptavinir TM ánægðastir

Viðskiptavinir Tryggingamiðstöðvarinnar eru ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaganna á Íslandi samkvæmt mælingu Capacent á ánægju viðskiptavina tryggingafélaganna. Capacent framkvæmir árlega könnun undir heitinu Íslenska ánægjuvogin. Þetta er þriðja árið í röð sem viðskiptavinir Tryggingamiðstöðvarinnar eru ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaganna. Lesa meira
 
Endurskinsmerki Vetrarhátíðar

5.2.2008 : TM eykur öryggið á Vetrarhátíð

TM hefur í samráði við Reykjavíkurborg látið útbúa sérstök Vetrarhátíðar endurskinsmerki sem dreift verður eftir fremsta megni á atburðum hátíðarinnar. Lesa meira
 
íslensku vefverðlaunin 2007

28.1.2008 : Vefur TM tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna

Vefur Tryggingamiðstöðvarinnar, www.tm.is, hefur verið tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum Besti fyrirtækjavefurinn og Besta útlit og viðmót. Lesa meira
 
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM afhenti Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar, Varðbergið.

7.1.2008 : Ölgerðin hlýtur Varðbergið

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. hefur hlotið forvarnarverðlaunin Varðbergið. Verðlaunin hlýtur árlega viðskiptavinur Tryggingamiðstöðvarinnar sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum. Lesa meira
 

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III