Fyrirsagnalisti
Söngvarakeppni TM á Ormsteiti
TM á Egilsstöðum tók þátt í bæjarhátíðinni Ormsteiti laugardaginn 21.ágúst. Styrkti TM söngvarakeppni sem þótti heppnast afar vel. Krakkarnir fengu hjálp frá gömlum Idol þátttakendum við að æfa sig og undirbúa. Þóttu keppendur standa sig vel og góð stemmning var á staðnum.
Lesa meira
Pæjumót TM á Siglufirði
Pæjumóti TM á Siglufirði lauk þann 8. ágúst síðastliðinn. Þátttaka á mótinu hefur aldrei verið betri en mótið í ár þótti einkar flott enda um 20 ára afmælismót að ræða. Mikil stemmning var á staðnum en auk fótbolta var margt skemmtilegt í boði. Frábært veður skemmdi ekki heldur fyrir.
Lesa meira
Sex mánaða uppgjör
Hagnaður TM á fyrri helmingi ársins 2010 nam 319 m.kr. Um uppgjörið segir Sigurður Viðarsson forstjóri TM m.a. „Hagnaður félagsins af reglulegri starfsemi á fyrstu 6 mánuðum ársins dregst saman um 35% milli ára og skýrist það fyrst og fremst af lækkun fjárfestingatekna.”
Lesa meira
Ný forsíða TM vefsins í loftið
Ný forsíða TM lítur nú dagsins ljós. Það er eingöngu forsíðan sem fær andlitslyftingu en undirsíður halda sínu útliti og virkni. Markmiðið með þessum breytingum er að gera vefinn stílhreinni og einfaldari í notkun.
Við vonum að þessar breytingar reynist viðskiptavinum okkar gagnlegar og auðveldi aðgengi upplýsinga.
Lesa meira
TM eflir öryggi íbúa Sólheima
TM hefur tekið höndum saman við Sólheima um að efla öryggi á staðnum. Nokkuð hefur verið um innbrot og þjófnað á staðnum undanfarin misseri og leituðu forsvarsmenn Sólheima til TM um samstarf við að setja upp myndavélakerfi í byggðinni.
Lesa meira
Sólstöðuganga TM vel heppnuð
Sumarsólstöðuganga TM á Esjuna undir leiðsögn Ferðafélags Íslands fór fram nú á mánudagskvöldið. Þótti gangan vel heppnuð í alla staði en um 80 manns mættu galvaskir og tóku þátt í gleðinni.
Lesa meira
Bílalán TM eru eingöngu í íslenskum krónum
TM hefur um árabil veitt viðskiptavinum sínum lán til bílakaupa. Bílalán TM hafa alla tíð verið í íslenskum krónum. Dómur Hæstaréttar frá 16. júní síðastliðnum, þar sem lán sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla eru dæmd ólögmæt, hefur því engin áhrif á bílalánasamninga TM.
Lesa meira
Gönguferð TM um sumarsólstöður
Á lengsta degi ársins, mánudagskvöldið 21. júní, býður TM til Esjugöngu með leiðsögn reyndra fararstjóra frá Ferðafélagi Íslands. Allir viðskiptavinir TM eru velkomnir ásamt fjölskyldum sínum.
Lesa meira
Pæjumót TM í Eyjum 2010 - skoðið myndirnar
Pæjumóti TM í Vestmannaeyjum lauk nú um helgina eða þann 12. júní. Þótti mótið ganga afar vel í alla staði. Þátttaka á mótinu hefur aldrei verið betri og sýna myndirnar að mikil stemmning var á mótinu. Auk fótbolta var ýmislegt skemmtilegt í gangi eins og grillveisla og diskósund. Pæjurnar skemmtu sér því mjög vel.
Lesa meira
Við hjálpum þér að finna verkstæði
Í kjölfar ökutækjatjóns vaknar oft sú spurning hvert skal leita vegna viðgerða. Nýrri leitarvél hefur nú verið bætt við vefinn, sem gerir viðskiptavinum TM kleift að leita að réttingaverkstæðum, bílrúðuverkstæðum og bílaleigum eftir svæði, bílnúmeri og tegund bíls.
Lesa meira
Samstaða um að efla eldvarnir heimila
Öflugur hópur tryggingafélaga, stofnana og félagasamtaka hefur tekið höndum saman um að stuðla að bættum eldvörnum heimilanna í landinu. Hópurinn hyggst gera átak í fræðslu um eldvarnir í haust en hann mun síðan starfa áfram og meta þörf fyrir frekari aðgerðir.
Lesa meira
Samningur við Borgun hf. um ferðatryggingar korthafa endurnýjaður
Tryggingamiðstöðin hf. og Borgun hf. hafa endurnýjað samstarfssamning sinn um ferðatryggingar korthafa MasterCard kreditkorta. Samningurinn gildir frá 1. júní í 2010 til eins árs.
Lesa meira
Eldgosið - upplýsingar og forvarnir
Tjón á tryggðum eignum af völdum náttúruhamfara er tryggt af Viðlagatryggingu Íslands. TM ráðleggur fólki að fylgjast grannt með vefsíðum Almannavarna, Veðurstofu og Landlæknis næstu daga vegna tilkynninga um öskufall, vatnsflóð og aðrar hættur sem stafa af eldgosinu.
Lesa meira
TM aðalstyrktaraðili Pæjumótanna 2010
Á dögunum voru undirritaðir samstarfssamningar vegna Pæjumótanna á Siglufirði og í Vestmannaeyjum 2010. TM er aðalstyrktaraðili mótanna líkt og síðustu ár. Pæjumótin eru ein stærstu knattspyrnumót landsins ár hvert.
Lesa meira
Þorbjörn hf. hlýtur Varðbergið, forvarnaverðlaun TM
Útgerðarfyrirtækið Þorbjörn hf. hlaut í ár Varðbergið, forvarnaverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM heimsótti Þorbjörn hf. 17. mars og afhenti verðlaunin.
Lesa meira
Ársskýrsla TM 2009
Ársskýrsla TM 2009 er nú aðgengileg í tveimur útgáfum - annars vegar í PDF sniði og hins vegar í flettanlegu vefsniði.
Lesa meira
TM mót Stjörnunnar í handbolta 2010
Stjarnan hélt árlegt TM mót fyrir 8. flokk í handbolta helgina 6-7. mars. Mótið var haldið í íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ. Fjöldi handboltakrakka hvaðanæva að tók þátt en rúmlega 500 þátttakendur kepptu á mótinu. Fengu allir þátttakendur viðurkenningarpening frá TM að móti loknu.
Lesa meira
Aðalfundur TM
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn föstudaginn 19. mars 2010 klukkan 9.00 árdegis í húsakynnum félagsins, Síðumúla 24, Reykjavík.
Lesa meira
Uppgjör TM árið 2009
Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2009 var 237 m.kr. samanborið við 5.529 m.kr. tap 2008.
Lesa meira
Fæst dekkjaþjófnaður bættur?
Um helgina birtist í fréttum frásögn viðskiptavinar TM sem lenti í því að öllum dekkjunum var stolið undan bílnum hans. Hann var ósáttur við að tjónið fengist ekki bætt úr tryggingu bílsins og sagðist ætla að skipta um tryggingafélag vegna þessa. Bent skal á að ekkert íslenskt tryggingafélag bætir tjón af þessu tagi.
Lesa meira
Bílpróf TM uppfært
Bílpróf TM, æfingarprófið hér á TM.is, hefur nú fengið yfirhalningu. Spurningarnar hafa verið vandlega yfirfarnar af þremur ökukennurum og uppfærðar í ljósi breytinga á umferðarlögum síðan spurningarnar voru upphaflega samdar.
Lesa meira
Athugasemdir við athugun FME á iðgjöldum og viðskiptaháttum vátryggingafélaga
Á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) kemur fram að gerðar hafi verið athugasemdir við viðskipti tveggja tryggingafélaga þegar iðgjöld og viðskiptahættir vátryggingafélaganna voru til skoðunar.
Lesa meira
TM og Sparnaður hefja samstarf
Þann 5. janúar 2010 var undirritaður samstarfssamningur milli Tryggingamiðstöðvarinnar og Sparnaðar um sölu á vörum þeim sem samningsaðilar hafa að bjóða.
Lesa meira
Sérstakar tryggingar fyrir tónlistarmenn
Tryggingamiðstöðin og Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) hafa undirritað samning um víðtækt samstarf á sviði vátrygginga fyrir félagsmenn FÍH.
Lesa meira

