Fréttir

Eldgosið - upplýsingar og forvarnir

16.4.2010

Tryggingamiðstöðin vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Eignir sem eru brunatryggðar eru viðlagatryggðar. Viðlagatrygging bætir tjón af völdum náttúruhamfara. Ökutæki eru þó ekki viðlagatryggð, jafnvel þótt þau séu með kaskótryggingu. Nánari upplýsingar um trygginguna má finna á www.vidlagatrygging.is og í reglugerð um Viðlagatryggingu Íslands.


Tjón af völdum eldgoss - hvað er tryggt og hvað er ekki tryggt? *

  • Húseignir
    Allar húseignir skulu vera tryggðar með lögboðinni brunatryggingu, en viðlagatrygging fylgir brunatryggingu húseigna.
  • Ökutæki og húsvagnar
    Ökutæki og húsvagnar eru ekki viðlagatryggð þótt þau séu með kaskótryggingu. Tjón á þeim fást ekki bætt sé tjón af völdum eldgoss.
  • Lausafé
    Lausafé sem tryggt er gegn bruna fæst bætt úr viðlagatryggingu. Það á bæði við um sérstaka brunatryggingu og heimatryggingu.
  • Sumarhús og gróður við sumarhús
    Sumarhús (frístundahús) skulu vera brunatryggð eins og aðrar húseignir. Þau eru því einnig viðlagatryggð. Innbúsmunir (lausafé) í sumarhúsi bætast einnig úr viðlagatryggingu ef þeir eru brunatryggðir, sbr. hér að ofan. Í nánar tilgreindum sumarhúsatryggingum hjá TM (Sumarhúsatrygging TM2 og TM3) er unnt að fá sérstaka vátryggingu sem tekur til skemmda á gróðri á lóð sumarhússins. Ef slík trygging er fyrir hendi tekur hún til skemmda á gróðri sökum eldgoss.
  • Líkamstjón
    Slysatjón vegna eldgosa eru undanskilin í slysatryggingum, en eru þó innifalin i launþegatryggingu.
  • Búfé
    Sé búfé tryggt með landbúnaðartryggingu TM fæst tjón bætt úr viðlagatryggingu.
  • Dýr
    Dýr sem tryggð eru með gæludýratryggingu TM eru ekki viðlagatryggð. Tjón sem verður af völdum eldgoss fæst því ekki bætt.
  • Forföll og ferðatafir
    Flugfarþegum sem verða fyrir röskun á ferðatilhögun vegna eldgossins ber að snúa sér til flugfélags eða eftir atvikum ferðaskrifstofu, samanber reglugerð númer 574/2005 sem fjallar um réttindi flugfarþega. Samkvæmt 8. grein reglugerðarinnar á farþegi rétt á endurgreiðslu eða fá breytingu á flugleið. Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Flugmálastjórnar Íslands, www.caa.is.
    Tjón vegna röskunar á ferðatilhögun sem rekja má til eldgossins er ekki bótaskylt úr ferðatryggingum TM. Sama gildir almennt um kortatryggingar.

* Nánari upplýsingar má finna í skilmálum okkar.


Fræðsluefni vegna gossins

Um þessar mundir berst aska frá eldgosi í Eyjafjallajökli. Mikilvægt er að kynna sér rétt viðbrögð við öskufalli til að fyrirbyggja möguleg slys og tjón sem gosaskan getur valdið.

Útbúnir hafa verið bæklingar fyrir almenning um viðbrögð og hættur við gosösku. Bæklingarnir eru útgefnir af Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Matvælastofnun, Rauða kross Íslands, Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun.

Hætta á heilsutjóni vegna gosösku Bæklingur um öskufall - leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og á meðan á öskufalli stendur

Hætta á heilsutjóni vegna gosösku (PDF skjal 1.250 kb)

Bæklingurinn útskýrir hugsanleg áhrif gosösku á heilsufar manna og veitir upplýsingar um hvernig þú getur varið þig og fjölskyldu þína gegn öskufalli.

Öskufall - leiðbeiningar og viðbúnaður (PDF skjal, 305 kb)

Leiðbeiningar sem fylgja skal ef viðvörun um öskufall er gefin út,
tilmæli um hvað gera skal meðan á öskufalli stendur og hvaða aðferðir eru árangursríkastar við hreinsun ösku að loknu gosi.



Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III