Fyrirsagnalisti
TM eflir öryggi íbúa Sólheima
TM hefur tekið höndum saman við Sólheima um að efla öryggi á staðnum. Nokkuð hefur verið um innbrot og þjófnað á staðnum undanfarin misseri og leituðu forsvarsmenn Sólheima til TM um samstarf við að setja upp myndavélakerfi í byggðinni.
Lesa meira
Sólstöðuganga TM vel heppnuð
Sumarsólstöðuganga TM á Esjuna undir leiðsögn Ferðafélags Íslands fór fram nú á mánudagskvöldið. Þótti gangan vel heppnuð í alla staði en um 80 manns mættu galvaskir og tóku þátt í gleðinni.
Lesa meira
Bílalán TM eru eingöngu í íslenskum krónum
TM hefur um árabil veitt viðskiptavinum sínum lán til bílakaupa. Bílalán TM hafa alla tíð verið í íslenskum krónum. Dómur Hæstaréttar frá 16. júní síðastliðnum, þar sem lán sem tengd eru gengi erlendra gjaldmiðla eru dæmd ólögmæt, hefur því engin áhrif á bílalánasamninga TM.
Lesa meira
Gönguferð TM um sumarsólstöður
Á lengsta degi ársins, mánudagskvöldið 21. júní, býður TM til Esjugöngu með leiðsögn reyndra fararstjóra frá Ferðafélagi Íslands. Allir viðskiptavinir TM eru velkomnir ásamt fjölskyldum sínum.
Lesa meira
Pæjumót TM í Eyjum 2010 - skoðið myndirnar
Pæjumóti TM í Vestmannaeyjum lauk nú um helgina eða þann 12. júní. Þótti mótið ganga afar vel í alla staði. Þátttaka á mótinu hefur aldrei verið betri og sýna myndirnar að mikil stemmning var á mótinu. Auk fótbolta var ýmislegt skemmtilegt í gangi eins og grillveisla og diskósund. Pæjurnar skemmtu sér því mjög vel.
Lesa meira
Við hjálpum þér að finna verkstæði
Í kjölfar ökutækjatjóns vaknar oft sú spurning hvert skal leita vegna viðgerða. Nýrri leitarvél hefur nú verið bætt við vefinn, sem gerir viðskiptavinum TM kleift að leita að réttingaverkstæðum, bílrúðuverkstæðum og bílaleigum eftir svæði, bílnúmeri og tegund bíls.
Lesa meira
Samstaða um að efla eldvarnir heimila
Öflugur hópur tryggingafélaga, stofnana og félagasamtaka hefur tekið höndum saman um að stuðla að bættum eldvörnum heimilanna í landinu. Hópurinn hyggst gera átak í fræðslu um eldvarnir í haust en hann mun síðan starfa áfram og meta þörf fyrir frekari aðgerðir.
Lesa meira
Samningur við Borgun hf. um ferðatryggingar korthafa endurnýjaður
Tryggingamiðstöðin hf. og Borgun hf. hafa endurnýjað samstarfssamning sinn um ferðatryggingar korthafa MasterCard kreditkorta. Samningurinn gildir frá 1. júní í 2010 til eins árs.
Lesa meira

