Samstarfssamningur TM og Alþjóðahússins
TM og Alþjóðahús hafa gert með sér samstarfssamning til tveggja ára sem beinist að því að auka vátryggingaþjónustu við fólk af erlendum uppruna sem búsett er á Íslandi. Samkvæmt samningnum tekur TM að sér að gefa út bæklinga um tryggingar TM á fjórum tungumálum á samstarfstímanum: ensku, pólsku, rússnesku og spænsku og auka samhliða því þekkingu starfsmanna Alþjóðahússins á starfsemi TM. Þá mun Alþjóðahús halda námskeið fyrir starfsmenn TM á sviði fjölmenningar og menningarfærni í þeim tilgangi að gera þá hæfari í þjónustu sinni við viðskiptavini af ólíkum uppruna. Samstarfssamningurinn var undirritaður í móttöku sem TM hélt nýlega fyrir starfsfólk Alþjóðahúss af þessu tilefni.
Alþjóðahús er upplýsingamiðstöð fyrir innflytjendur á Íslandi og um málefni innflytjenda og veitir ráðgjöf, túlka- og þýðingarþjónustu, fræðslu og íslenskukennslu í þessu skyni.

Ragnheiður Agnarsdóttir framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu TM og Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahúss handsala samninginn.

