Samfélagsleg ábyrgð
Samfélagsmál TM
Íslenska kvennaknattspyrnan
TM styrkir fjölda íþróttafélaga ásamt því að leggja öðrum æskulýðsmálum lið. Megináhersla er lögð á að styrkja félög sem hlúa vel að íslensku kvennaknattspyrnunni.
TM styður íslenska kvennaknattspyrnu - sjónvarpsauglýsing (wmv skrá, 11.8 MB).
Pæjumót TM
TM er aðalstyrktaraðili Pæjumóts á Siglufirði og í Vestmannaeyjum. Þessi mót eru gífurlega vel sótt og allar fótboltastelpur sem sækja þessi mót fá veglegar gjafir tengdar boltanum. Margrét Lára hefur sótt mótin og kennt stelpunum hvernig megi bæta sig í íþróttinni.
Margrét Lára Viðarsdóttir
TM og Margrét Lára Viðarsdóttir hafa unnið saman að því að efla kvennaknattspyrnuna á Íslandi. Margrét Lára hefur heimsótt fjölda íþróttafélaga um land allt og haldið fyrirlestra fyrir unga knattspyrnuiðkendur þar sem hún bendir á hvernig megi bæta sig í íþróttinni.
Eldvarnavika LSS
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) er í samvinnu við TM í árlegu eldvarnarátaki. Slökkviliðsmenn leitast við að bæta eldvarnir á heimilum með Eldvarnarátakinu og felst í því meðal annars að slökkviliðsmenn heimsækja nemendur í 3. bekk grunnskóla um allt land og fræða þá og fjölskyldur þeirra um eldvarnir heimilisins. Börnin leysa eldvarnargetraun og bæklingi um eldvarnir er dreift til foreldra barnanna.
TM mót Stjörnunnar
TM heldur árlegt mót með Stjörnunni þar sem allir yngstu handboltakrakkar landsins fá að leika listir sínar. Hundruðir barna 7 ára og yngri hvaðanæva af landinu taka þátt í mótinu, en reglur í þessum aldursflokki eru frábrugðnar venjulegum handboltareglum enda eru keppendurnir 7 ára og yngri. Allir þátttakendur fá viðurkenningapening frá TM að móti loknu.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá


