TM mót Stjörnunnar
Stjarnan hélt árlegt TM mót fyrir 8. flokk í handbolta helgina 6-7. mars. Mótið var haldið í íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ. Fjöldi handboltakrakka hvaðanæva að tók þátt en rúmlega 500 þátttakendur kepptu á mótinu. Fengu allir þátttakendur viðurkenningarpening frá TM að móti loknu.
Gekk mótið vel í alla staði og skemmtu þátttakendurnir og gestir sér frábærlega. Hér má finna myndir af litlu íþróttaköppunum í góðu stuði.

































