Persónuupplýsingar

Stefna Tryggingamiðstöðvarinnar um meðferð persónuupplýsinga er að hlíta lögum númer 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Tryggingamiðstöðin leggur mikinn metnað í trúnað við viðskiptavini sína. Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru til að mynda ekki látin þriðja aðila í té nema liggi fyrir skýrt umboð frá þeim sem persónuupplýsingar varða, þriðji aðili hafi heimild sem byggist á ákvæðum laga eða að fengnum dómsúrskurði. Þær upplýsingar sem félagið aflar eru aðeins notaðar við mat á bótakröfum eða vátryggingarbeiðnum.

Reglur TM um tölvupóst frá félaginu

Upplýsingar sem koma fram í tölvupósti, sendum frá netföngum TM eru trúnaðarupplýsingar og kunna að falla undir ákvæði um þagnarskyldu. Þessar upplýsingar eru eingöngu ætlaðar skráðum viðtakendum. Öllum öðrum er óheimill aðgangur að upplýsingum þeim sem koma fram í tölvupósti frá TM. Ef þú ert ekki sá sem tölvupósturinn er ætlaður, er þér bent á að þér er óheimilt að upplýsa um tölvupóstinn, afrita hann eða dreifa honum og þér er einnig óheimilt að framkvæma, eða láta vera að framkvæma, einhverjar aðgerðir á grundvelli hans, en þessi háttsemi getur verið refsiverð að lögum.

 

Disclaimer

The information in email from TM is confidential and may be legally privileged. It is intended solely for the addressee. Access to email from TM by anyone else is unauthorized. If you are not the intended recipient, any disclosure, copying, distribution or any action taken or omitted to be taken in reliance on it, is prohibited and may be unlawful.

 

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III