-
1956 Tryggingamiðstöðin
hf. var stofnuð 7. desember 1956 af aðilum tengdum sjávarútvegi.
-
1956 Gísli Ólafson var ráðinn forstjóri.
-
1957 Félagið hóf starfsemi sína 2. janúar 1957 að Aðalstræti 6 þar sem það félagið starfaði fram til 30 janúar 2009. Félagið bauð upp á alhliða vátryggingastarfsemi, þó ekki bifreiðatryggingar og líftryggingar.
-
1967 Félagið hóf sölu bifreiðatrygginga.
-
1971 Líftryggingamiðstöðin hf. stofnuð.
-
1985 Sameinaða líftryggingarfélagið hf. stofnað. Tryggingamiðstöðin hf. er hluthafi í Samlíf auk Sjóvá - Almennra trygginga hf. og fleiri aðila.
-
1986 Félagið kaupir 51% hlutafjár í Reykvískri endurtryggingu hf. og Líftryggingafélaginu Verði hf. Það var síðan selt í september 1989.
-
1987 Slit Líftryggingamiðstöðvarinnar samþykkt.
-
1991 Gunnar Felixson tók við sem forstjóri af Gísla Ólafsyni.
-
1991 Félagið tók að sér ferðatryggingar fyrir VISA og MasterCard korthafa.
-
1993 Tjónaskoðunarstöð tekin í notkun að Hamarshöfða 2 í Reykjavík.
-
1996 TM-ÖRYGGI sett á markað. TM-ÖRYGGI er vátryggingavernd sem sameinar öll tryggingamál fjölskyldunnar á hagkvæman og þægilegan hátt.
-
1997 20.000 bílar eru tryggðir hjá félaginu.
-
1998 Tryggingamiðstöðin hf. fer á Verðbréfaþing Íslands.
-
1998 Tryggingamiðstöðin hf. og Trygging hf ákveða að sameinast.
-
1999 Tryggingamiðstöðin hf. og Trygging hf sameinast þann 1. nóvember í húsnæði þess fyrrnefnda.
-
2002 Tryggingamiðstöðin stofnar Líftryggingamiðstöðina sem selur líf- og sjúkdómatryggingar undir TM-LÍF.
-
2003 Tryggingamiðstöðin býður viðskiptavinum fyrst tryggingafélaga uppá gæludýratryggingu.
-
2005 Óskar Magnússon tók við sem forstjóri af Gunnari Felixsyni.
-
2006 Elísabet skríður á vaðið með hagstæðari kjör á bílatryggingum og bílalánum. Eingöngu í boði á www.elisabet.is.
-
2006 TM kaupir norskt tryggingafélag, NEMI Forsikring ASA.
-
2006 TM 50 ára 7. desember.
-
2007 Sigurður Viðarsson tekur við starfi forstjóra af Óskari Magnússyni.
-
2007 Vefur TM hlaut vottun fyrir forgang 3 um gott aðgengi fatlaðra frá Sjá og Öryrkjabandalaginu fyrstur íslenskra vefja.
-
2009 TM flytur höfuðstöðvar sínar frá Aðalstræti 6-8 að Síðumúla 24
-
2009 TM selur Nemi Forsikring ASA
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá