Beint í leiðakerfi
Tryggingamiðstöðin (TM) býður alhliða vátryggingarþjónustu í eigin nafni eða í samstarfi við aðra. Fjárfestingarstarfsemi er ríkur þáttur í starfsemi félagsins. Höfuðstöðvar TM eru á Íslandi og félagið veitir þjónustu hérlendis og erlendis.
Markmið okkar er að veita viðskiptavinum yfirburðaþjónustu á öllum sviðum - hvort sem er við kaup trygginga, úrlausn tjóna, í lánaviðskiptum eða greiðsluþjónustu. Fjárhagslegur styrkleiki TM er lykillinn að því að viðskiptavinir okkar geti verið þess vissir að við séum til staðar þegar mest á reynir. Á þann hátt getum við átt þátt í því að þeir lifi ánægjulegu lífi - lausir við áhyggjur af rekstrar- og fjármálalegu óöryggi.
Við höfum að leiðarljósi að einfalda vöruframboð okkar en um leið að bæta vöruúrval í vátryggingum og lánaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Við leitum að tækifærum og finnum samskiptum okkar við viðskiptavini og sölustarfi nýjan farveg eftir því sem aðstæður bjóða upp á hverju sinni.
Velgengni okkar er undir mörgum þáttum komin en ekki síst starfsmönnum. Við metum því mikils hugmyndir, hæfileika, frumkvæði og tryggð þeirra. Með því að hafa eftirfarandi gildi að leiðarljósi geta starfsmenn átt þátt í því að markmið okkar verði að veruleika.
Við berum einnig ábyrgð á því að TM sé álitlegur fjárfestingarkostur og skili eigendum arði - án þess þó að það sé á kostnað ofangreindra gilda. Þátttaka okkar í samfélagslegum verkefnum, meðal annars á sviði fræðslu, getur stuðlað að betri afkomu og hagstæðari kjörum viðskiptavinum til handa.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Hafa samband 515 2000
Neyðarnúmer TM800 6700