Störf hjá TM
Tryggingamiðstöðin hefur það að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfu og vel menntuðu starfsfólki og skapa því umhverfi til að vaxa og þróast í starfi. Þeir sem hafa áhuga á að starfa hjá TM eru hvattir til að senda inn umsókn.
Hægt er að senda inn almenna umsókn eða sækja um auglýst starf.
Þú getur sent inn almenna umsókn um starf hjá TM hér.
Tryggingamiðstöðin er framsækið fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu. TM leggur áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu og hefur ánægja meðal viðskiptavina tryggingafélaga mælst mest hjá TM þrjú undanfarin ár. Hjá TM starfar rúmlega 140 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni. Það er keppikefli starfsmanna Tryggingamiðstöðvarinnar að standa undir kröfum og væntingum viðskiptavina og hluthafa og koma fram af heiðarleika og einlægni.
Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

