Aðgengismál

Tryggingamiðstöðin hefur hlotið vottun frá fyrirtækinu Sjá ehf. og Öryrkjabandalaginu um að TM vefurinn www.tm.is standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Vefur TM hefur fengið bæði vottun fyrir forgang 1, 2 og 3 og er fyrsta einkafyrirtækið á Íslandi til þess að fá slíka vottun. Er þetta í samræmi við það höfuðmarkmið TM að veita góða þjónustu á mannlegum nótum. Forgangur 1 er lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi á vef. Forgangur 2 gerir meiri kröfur um aðgengi á vefnum og forgangur 3 gerir miklar kröfur um aðgengi vefs. Vottunin nær ekki til vefsíðna sem eru á erlendum tungumálum.

Lágmarkskröfur um aðgengi fatlaðra, forgangur 1. Meiri kröfur um aðgengi fatlaðra, forgangur 2. Hármarkskröfur um aðgengi fatlaðra, forgangur 3.

Það sem gert hefur verið til að bæta aðgengið á vefnum er meðal annars:

  • Farsímaútgáfa af vefnum er aðgengileg á slóðinni http://m.tm.is. Vefurinn er léttur og hraðvirkur í notkun, en hann hefur verið prófaður í öllum helstu farsímategundum. 
  • Hægt er að skoða allt efni vefsins í skjálesurum en þá nota blindir og sjónskertir.
  • Hægt er að stækka og minnka letrið á skjánum.
  • Hægt er að breyta um bakgrunnslit fyrir sjónskerta og/eða lesblinda. Uppsetning síðunnar breytist ekki.
  • Textahamur í boði fyrir lesblinda notendur. Uppsetning síðunnar breytist.
  • Hreyfihamlaðir notendur geta vafrað um vefinn án þess að nota músina.
  • Öll tenglaheiti eru skýr.
  • Allar skammstafanir hafa annaðhvort verið teknar út eða eru með útskýringu.
  • Allar myndir hafa útskýringatexta (ALT texta).
  • Öll viðhengi eru útskýrð. Til dæmis kemur fram tegund og stærð skjals og hvort að það sé aðgengilegt í skjálesara.
  • Heyrnarlausir notendur geta spjallað við starfsmenn um tryggingamál í Netspjalli TM.
  • Allir skilmálar hafa verið sérútbúnir fyrir skjálesara.
  • Öll rafræn eyðublöð hafa verið útbúin fyrir skjálesara.
  • Vefurinn virkar án javascripta.
  • Myndskeið eru textuð fyrir heyrnarlausa notendur.
  • Ítarlegur orðalisti í boði.
  • Leiðbeiningar og útskýringar fyrir ofan alla virkni.
  • Hljóðskrár í boði í Bílprófi TM. Hentar þeim sem taka bílprófið munnlega.
  • Táknmálsmyndskeið fyrir heyrnarlausa undir öllum flipum og einnig undir Mínu öryggi og Netspjalli TM.
  • Auðlesið efni í boði. Ætlað til dæmis þeim sem vilja einfaldari texta.
  • Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá.

Vottun vefráðgjafarfyrirtækisins Sjá byggist á gátlistanum WAI (Web Accessibility Initiative) hefur verið uppfærður miðað við nýjustu útgáfu sem er alþjóðlegur staðall fyrir aðgengi á Netinu. Sjá hefur í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands sniðið listann að íslenskum aðstæðum og hefur hann verið prófaður af notendum með margs konar fötlun.

Skoða Aðgengisstefnu TM.

Nánari upplýsingar veitir vefstjóri TM. Allar ábendingar um betri og aðgengilegri vef eru vel þegnar.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá



 

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III