Spurt og svarað


Við hjá TM leggjum okkur fram við að svara spurningum viðskiptavina okkar eins fljótt og mögulegt er. Þá höfum við haldið utan um þær spurningar sem berast okkur oft og búið til brunn upplýsinga fyrir viðskiptavinina.  Með því að smella á flipana hér fyrir neðan getur þú lesið algengustu spurningar og svör í hverjum flokki.

 

Bílalán

Hvers vegna er meira lánað í nýjum bílum en notuðum?

Svar:

Þetta snýst helst um öryggi okkar sem lánveitanda. Nýir bílar hafa verðskrá sem er skjalfest en ekki notaðir bílar. Þá er verðlagning á notuðum bílum oft misjöfn, til dæmis er einn maður tilbúinn að greiða 3 milljónir fyrir ákveðna týpu af Benz en annar er bara tilbúinn að greiða 2 milljónir. Lesa meira

Nú bý ég í Neskaupstað og hef áhuga á að sækja um bílalán hjá TM.

Svar:

Næsta umboð TM sem er í þínu tilfelli í Neskaupsstað. Einnig getur þú sótt um í gegnum internetið ef þú hefur aðgang að því.

Nú tók ég bílalán hjá TM í ágúst 2003. Lækka vextir á mínu láni?

Svar:

Nei , fastir vextir eiga eingöngu við lán sem tekin eru á tímabilinu 22. maí 2006 - 15. júní 2006. Vextir á verðtryggðum skuldabréfum með breytilegum vöxtum er hægt að skoða hér.

Ég ætla að kaupa nýlegan bíl frá USA. Fæ ég lán?

Svar:

Sömu reglur gilda um svona bíla eins og aðra. Bíllinn þarf að vera kominn til landsins og á íslensk númer til að vera lánshæfur. Lesa meira

Bíllinn

Borga ég lægri iðgjöld ef ég fæ bílalán hjá ykkur og kaskótryggi bílinn hjá TM?

Svar:

Ef þú gengur í TM-Öryggi greiðir þú bæði lægri iðgjöld og borgar lægra lántökugjald af bílaláninu. Skilyrðin til að ganga í TM-Öryggi er að vera með tvær tryggingar og þær uppfyllir þú með því að vera með ábyrgðar- og kaskótryggingu.

Borga ég sömu iðgjöld ef ég er með lögheimili úti á landi?

Svar:

Nei. Iðgjald skyldutryggingar er skipt í þrjú áhættusvæði og iðgjald kaskótryggingar í tvö. Skyldutryggingin er ódýrari í dreifbýli en kaskótryggingin er ódýrari í þéttbýli.

Ég er að fara með Norrænu til Noregs. Ég mun fara víða, svo sem til Svíþjóðar, Þýskalands og Póllands. Er bíllinn örugglega tryggður hvar sem er á meðan ferðinni stendur? Á ég að fá einhverja

Svar:

Ábyrgðar- og kaskótrygging bifreiðarinnar gildir á ferðalögum innan evrópu gegn viðbótariðgjaldi (grænt kort). Nánari upplýsingar um lönd þar sem tryggingin gildir ekki fást á aðalskrifstofu. Þeir sem kaupa græna kortið fá staðfestingu.

Ég er nýflutt til Danmerkur. Get ég fengið staðfestingu frá ykkur um að ég hafi ekið án tjóns síðastliðin 10 ár?

Svar:

Ef þú hefur tryggt bílinn hjá TM, án þess að valda tjóni, sendum við þér staðfestingu þar að lútandi. Hún getur verið á dönsku, ensku eða þýsku.

Ég lánaði systur minni bílinn minn. Hún lenti í árekstri á honum og var í 100% órétti. Missi ég allan bónus?

Svar:

Hjá TM fellur þú ekki í bónus. Ef tjónið er hærra en 75.000 krónur í ábyrgðartryggingunni er greitt iðgjaldsálag upp á 23.000 krónur, ef tjónið er undir 75.000 krónur er ekkert iðgjaldsálag. Ef þú ert með kaskótryggingu er einungis greidd sú eigin áhætta sem þú hefur valið þér og á kaskótryggingunni er ekkert iðgjaldsálag. Ef þú ert í TM-Öryggi og með 10% tjónleysisafslátt getur tjónið haft áhrif á afsláttinn.

Ég lenti í árekstri og var í órétti. Á ég rétt á bílaleigubíl hjá TM þar sem ég var kaskótryggður?

Svar:

Já, TM greiðir daggjald af bílaleigubíl af minnstu gerð, að hámarki í 5 daga.

Í rokinu um daginn fauk þakplata af húsinu við hliðin á mér á bílinn minn og stórskemmdi. Bætir ábyrgðartryggingin mín tjónið?

Svar:

Ábyrgðartrygging þín bætir tjón sem þú kannt að valda öðrum og bætir því ekki tjón á bílnum þínum. Tjón á eigin bíl sem ekki fæst bætt frá öðrum aðila getur þú einungis fengið bætt sé kaskótrygging í gildi.

Nágranni minn var að láta mála húsið hjá sér um daginn með þeim afleiðingum að það virðist hafa farið úði á bílinn minn.

Svar:

Ábyrgðartrygging þín bætir tjón sem þú kannt að valda öðrum en ekki tjón á eigin bifreið. Í þessu tilfelli er það iðnaðarmaðurinn sem trúlega ber ábyrgð á tjóninu og er því réttast að snúa sér til hans varðandi málið.

Það var keyrt utan í bílinn minn kyrrstæðan og stungið af. Er ég tryggður gegn slíku?

Svar:

Ef bíllinn þinn er kaskótryggður þá ertu tryggður gegn þessu, það er gagnvart því tjóni sem er umfram eigin áhættu.

Farmtryggingar

Óska eftir upplýsingum um hvort að Tryggingamiðstöðin tekur að sér tryggingu á ábyrgðarbréfum milli landa.

Svar:

Íslandspóstur býður tryggingar á öllum póstsendingum í umboði TM. Nánari upplýsingar um pósttryggingar fást á næsta pósthúsi.

Við erum að flytja heim frá Bandaríkjunum.

Svar:

Hægt er að farmtryggja búslóð í flutningi milli landa. Iðgjald fyrir slíka trygginu er 1% af verðmæti. Sjálfsáhætta í hverju tjóni er 50.000 krónur.

Ferðatryggingar

Ég er starfsmaður ferðaskrifstofu og ferðast því á frímiða. Ég borga aðeins flugvallarskattinn og 10% af kostnaði farseðilsins með kortinu mínu. Er ég tryggður með kortinu í ferðinni?

Svar:

Það skiptir ekki máli hvaða verð er greitt fyrir ferðina. Alltaf dugar að greiða viðeigandi hluta ferðakostnaðar (fargjalds og gistingar) með korti, oftast 50% (mismunandi eftir kortategund). Ef reikningur ferðaskrifstofunnar sýnir að ferðin þín kosti 20.000 krónur er nægilegt að greiða 10.000 krónur með korti til að trygging sé í gildi.

Ég fór til Mallorka í 3 vikur í sumar. Ég veiktist, fékk flensu í heilar tvær vikur og þurfti að liggja í rúminu. Ég keypti ferðatryggingu hjá TM áður en ég fór í ferðina. Á ég rétt á einhverjum bótum

Svar:

Ferðasjúkrakostnaðartrygging erlendis greiðir sjúkrakostnað samkvæmt reikningum en ferðin fæst ekki endurgreidd nema legið hafi verið á sjúkrahúsi að minnsta kosti helming tímans.

Er ég tryggð út á kreditkortið á ferðalagi erlendis ef ég borga ferðina ekki með kortinu?

Svar:

Nei. En ef þú átt kreditkort og borgar ferðina ekki með kortinu getur þú keypt sérstaka korthafatryggingu.
Ef þú ert með Platinum kort þá ertu ferðatryggð út á kortið, þó að þú hafir ekki borgað ferðina með kortinu. Það er sem sagt ekki skilyrði í skilmálum Platinum kortsins að ferðin sé borguð með kortinu.

Við gömlu hjónin dveljum á Spáni í 6 mánuði á ári hverju. Við erum í TM-Öryggi. Erum við tryggð ef við þurfum til dæmis að fara á spítala?

Svar:

Í Heimatryggingu TM2, TM3 og TM4 er sjúkrakostnaðartrygging erlendis valkvæð og tekur sú trygging til sjúkrakostnaðar erlendis vegna tjónsatvika sem verða fyrstu 92 dagana frá brottfarardegi. Því er nauðsynlegt að kaupa viðbótartryggingu fyrir það tímabil sem er umfram 92 daga.

Heimilið

Ég fór með leðurjakka í efnalaug og fékk hann upplitaðan til baka. Á ég rétt á bótum frá TM eða ber mér að gera kröfu á efnalaugina?

Svar:

Ekki er um að ræða bótarétt hjá TM vegna þessa en ætla verður að efnalaugin sé að einhverju leyti bótaskyld.

Ég geymi peningana mína heima þessa dagana. Eru þeir tryggðir ef brotist verður inn og þeim stolið?

Svar:

Peningar, verðbréf, handrit, frumteikningar, mynt- og frímerkjasöfn eru tryggð að hámarki 1% vátryggingarfjárhæðar, hver liður, fyrir brunatjónum, vatnstjónum og þjófnaði í kjölfar innbrots.

Ég setti föt í þvottavélina um daginn og stillti óvart á of mikinn hita. Fötin minnkuðu öll og eru ónothæf í dag. Bætir TM-Öryggi svona tjón?

Svar:

Tjón á fatnaði í þvotti er því aðeins bótaskylt að þvottavélin bili með þeim afleiðingum að þvottur skemmist. Um bótaskyldu er ekki að ræða sé þvottavélin ranglega stillt þegar hún er gangsett.

Í rigningunni um daginn lak inn í kjallarann hjá mér meðfram glugganum og parketið bólgnaði upp.

Svar:

Það er eðli vatnstjónstrygginga hvort sem er í Heimatryggingu TM eða fasteignatryggingu að vatnstjón er bætt svo framarlega sem vatnið kemur úr leiðslum hússins eða um skyndilega asahláku er að ræða. Í þessu tilfelli sýnist vera um skort á viðhaldi að ræða og bótaskylda því ekki fyrir hendi.

Lítil frænka mín var í heimsókn um daginn og braut kristalsvasa sem hún ýtti óvart á gólfið.

Svar:

Trygging þín bætir ekki tjónið en hafi foreldrar frænku þinnar Heimatryggingu TM eru líkur á að sú trygging bæti skaðann.

Það var brotist inn hjá mér (farið inn um hálfopinn glugga um miðja nótt) og verðmætu frímerkjasafni stolið.

Svar:

Ef þú ert með Heimatryggingu TM eru bætur vegna frímerkjasafns allt að 1% af vátryggingarfjárhæð.

Er áfallahjálp eitthvað sem ég get nýtt mér vegna innbrots hjá mér?

Svar:

Já Heimatrygging TM býður áfallahjálp einmitt við slíkum tilvikum.

Mitt Öryggi

Af hverju kemst ég ekki inn á lykilorðinu mínu Igk126 ?

Svar:

Ástæðan er sennilega sú að þú ert að slá inn á lyklaboðið stóran staf I eins og í Ingi en í þessu tilfelli er sennilega ekki um i að ræða heldur l eins og í ljós.

Af hverju koma punktar í lykilorðasvæðinu?

Svar:

Þú hefur áður skráð þig inn og tölvan geymir í minni tölvunnar lykilorðið ef vefskoðarinn er stilltur þannig. Öruggast er að slá inn notandanafnið og þurrka út punktana og slá inn lykilorðið. Þegar lykilorðið er slegið inn koma punktar til að fela það fyrir öðrum sem eru ef til vill að horfa á skjáinn þinn.

Af hverju sé ég ekki tryggingar sem eru skráðar á maka minn?

Svar:

Maki þinn þarf fyrst að gefa þér aðgang að sínum tryggingum til þess að þú sjáir þær. Hann þarf því að opna Mitt öryggi með sínu notandanafni og lykilorði og fara í „Heimildir" og smella á hnappinn „Ný heimild". Því næst slær hann inn þína kennitölu og að lokum á hnappinn „Áfram". Hann getur einnig valið hvaða dag þú átt ekki lengur að sjá hans tryggingar. Á næstu skjámynd smellir hann síðan á hnappinn „Staðfesta". Þegar hann er búinn að þessu ferð þú inn í Mitt öryggi á þínu notandanafni og lykilorði og velur „Yfirlit" og smellir á hnappinn „Nýr hópur aðila". Þá áttu að sjá nafnið hans. Þú skírir hópinn til dæmis með hans nafni og hakar við nafn hans og smellir í lokin á hnappinn „Vista".

Ég er ekki tryggð hjá TM en get ég sótt um Mitt öryggi?

Svar:

Já, þó svo að þú sért ekki með neinar tryggingar hjá TM getur þú sótt um aðgang að Mínu öryggi. Allir sem hafa íslenska kennitölu geta sótt um aðgang. Þú sérð hinsvegar ekki neinar tryggingar þar sem þú ert ekki tryggð hjá TM.

Ég man ekki lykilorðið, hvað á ég að gera?

Svar:

Smelltu á Mitt öryggi á TM vefnum og síðan á „Gleymt lykilorð". Þá birtist gluggi þar sem kennitala skal skráð og val um sendingarmáta nýs lykilorðs.

Ég man ekki notandanafnið, hvað á ég að gera?

Svar:

Smelltu á Mitt öryggi á TM vefnum og síðan á „Gleymt lykilorð". Þá birtist gluggi þar sem kennitala skal skráð og val um sendingarmáta nýs notandanafns.

Eru allir sem eru tryggðir hjá TM í Mínu öryggi?

Svar:

Nei, aðeins þeir sem eru í TM-öryggi fá sjálfkrafa aðgang að Mínu öryggi. Aðrir verða að sækja um aðgang á TM vefnum, þar á meðal öll fyrirtæki.

Fá fyrirtæki sem tryggð eru hjá TM sendan heim aðgang að Mínu öryggi?

Svar:

Nei. Fyrirtæki þurfa að sækja um aðgang að Mínu öryggi á TM vefnum og fá sent notandanafn og lykilorð.

Fá nýir viðskiptavinir sendan heim aðgang að Mínu öryggi?

Svar:

Nýir viðskiptavinir sem fara í TM-öryggi fá sjálfkrafa sendan heim aðgang að Mínu öryggi hjá TM. Þeir sem fara ekki í TM-öryggi þurfa hinsvegar að sækja um aðgang á TM vefnum.

Get ég gefið endurskoðanda mínum aðgang að mínu svæði?

Svar:

Það er hægt að veita endurskoðanda, jafnt og maka eða öðrum aðgang að Mínu öryggi, með eða án tímatakmarkana.

Hvað er Mitt öryggi?

Svar:

Mitt öryggi gerir viðskiptavinum kleift að skoða tryggingar, viðskipta- og greiðslustöðu sína á TM vefnum. Því má líkja Mínu öryggi við „Heimabanka" þinn hjá TM. Einnig er hægt að skoða stöðu tjóna og upplýsingar fyrir skattaskýrsluna svo sem greidd iðgjöld og vaxtagjöld af lánum.

Hvernig breyti ég lykilorðinu?

Svar:

Í fyrsta skiptið sem þú skráir þig inn í Mitt öryggi þarftu að breyta lykilorðinu. Ef þú vilt breyta því aftur seinna ferðu inn í Mitt öryggi og velur „Stillingar" og þar undir „Breyta lykilorði". Síðan slærðu inn núverandi lykilorð, það er gamla lykilorðið og slærð inn það nýja í næstu tvö innsláttarsvæði. Smellir síðan í lokin á hnappinn „Staðfesta".

Hvernig gef ég öðrum aðgang að tryggingunum mínum?

Svar:

Þú ferð í „Heimildir" og smellir á „Ný heimild" hnappinn. Því næst slærðu inn kennitölu þess aðila sem á að sjá þínar tryggingar. Þú getur valið gildistíma á heimildina ef hún er tímatakmörkuð eða sleppt því. Í lokin er smellt á „Áfram". Á síðu 2 smellir þú á „Staðfesta" ef allar upplýsingar eru réttar eða „Leiðrétta" ef þú vilt breyta einhverju.

Til hvers ætti ég að skrá gsm númerið mitt í Mitt öryggi?

Svar:

Við mælum með að fólk geri það því ef þú gleymir annaðhvort notandanafni þínu eða lykilorði getur þú fengið þau send strax með SMS skilaboðum. Þú smellir á „Gleymt lykilorð" undir Mitt öryggi á forsíðu TM vefsins, slærð síðan inn kennitölu þína, velur SMS í felliglugganum og smellir á hnappinn „Senda notandanafn og lykilorð". TM borgar sendingarkostnaðinn á SMS skilaboðunum.

Nám erlendis

Ég er að fara í eins árs nám í Noregi og ætla að taka bílinn með.

Svar:

Hægt er að tryggja áfram hjá TM með því að kaupa grænt kort.

Ég er að fara í nám til útlanda, á ég að kaupa tryggingu?.

Svar:

Já, til að mynda slysatryggingu og sjúkrakostnaðartryggingu.

Ég er að fara til Englands í nám, get ég notað kortatryggingu?

Svar:

Korthafatryggingar gilda einungis á útleið og heimleið fyrir námsmenn.

Ég er að flytja heim frá Bandaríkjunum eftir nám.

Svar:

Já. Þú þarft að hafa samband við TM og tryggja áður en þú sendir búslóðina og gefa upp verðmæti hennar. Iðgjald fyrir slíka tryggingu er 1% af verðmæti og sjálfsáhætta í hverju tjóni er 50.000 krónur.

Slys

Ég er í TM-Öryggi og lenti í slysi heima og var óvinnufær í tíu vikur. Á ég rétt á einhverjum bótum frá TM? Ég starfa sem dagmóðir heima.

Svar:

Ef þú ert með Heimatryggingu TM3 eða TM4 áttu rétt á dagpeningum sem eru 14.000 krónur á viku í TM3 en 17.000 krónur á viku í TM4 en í þessu tilfelli greiðir félagið dagpeninga í sex vikur þar sem biðtími vegna dagpeninga eru fjórar vikur. Hafi slysið borið að á þeim tíma sem þú varst við vinnu sem dagmóðir áttu ekki rétt á bótum því Heimatrygging TM tekur einungis til slysa í frítíma.

Ég lenti í vinnuslysi úti á sjó og var óvinnufær í þrjá mánuði. Á ég rétt á bótum frá TM þar sem ég er í TM-Öryggi? Atvinnurekandinn er einnig tryggður hjá TM.

Svar:

Þar sem um vinnuslys er að ræða áttu ekki bótarétt úr fjölskyldutryggingu því hún tekur eingöngu til slysa sem verða í frítíma. Slysatrygging sjómanna, sem er lögboðin, bætir væntanlega tjónið.

Á sonur minn rétt á áfallahjálp vegna bílslys sem hann lenti í?

Svar:

Já fjölskyldumeðlimir eiga rétt á áfallahjálp TM.

Tjónabílar

Er hægt að sjá í lok útboðs hæsta tilboð í hvern bíl fyrir sig?

Svar:

Já, klukkan 08:00 á þriðjudagsmorgnum er það hægt, með því að smella á Staða útboðs hnappinn.

Getið þið sent mér í tölvupósti fleiri myndir af ákveðnum tjónabíl?

Svar:

Já, sendið tölvupóst til tjonabilar@tm.is og takið fram hvar þið viljið að myndirnar verði teknar af bílnum.

Getur maður séð á vefsíðu TM hver bauð best í ákveðinn bíl?

Svar:

Nei, nafn kaupanda er ekki gefið upp.

Hvar skoðar maður tjónabílana?

Svar:

Tjónabílana er hægt að skoða í Tjónaskoðunarstöð TM að Hamarshöfða 2 á mánudögum frá klukkan 09:00-16:00. Einnig er hægt að skoða þá á internetinu frá klukkan 20:00 á föstudögum til klukkan 08:00 á þriðjudagsmorgnum. Slóðin er www.tryggingamidstodin.is

Sölutorg

Er hægt að fá bílalán á þessa bíla?

Svar:

Já það er hægt. Það fer eftir aldri bíls hversu lengi og mikið er lánað. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá söluaðila en einnig má fá nánari upplýsingar um bílalán inná vefsíðu TM.

Eru þetta allt bílar sem laskast hafa í tjónum?

Svar:

Nei. Algengast er að þetta séu bílar sem TM eignast vegna vanskila á lánum.

Hvert á ég að snúa mér ef ég vil skoða einhvern bíl betur?

Svar:

Þá er best að snúa sér til söluaðila bílsins. Það kemur fram við hvern bíl hvar hann er staddur.

Annað

Ég er í TM-ÖRYGGI. Er ég þar með tryggð gegn jarðskjálfta?

Svar:

TM-Öryggi er samheiti ýmissa vátrygginga. Allt lausafé og fasteignir sem eru brunatryggðar eru sjálfkrafa tryggðar gegn tjónum af völdum jarðskjálfta.

Undir hvaða tryggingu fellur reiðhjól?

Svar:

Reiðhjól fellur undir Heimatryggingu TM og er þjófnaður á reiðhjólum bættur úr þeirri tryggingu en skilyrði bótaskyldu er að hjólið hafi verið læst.

 


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III