Skyldutryggingu verður hver skráningarskyldur bíll að hafa samkvæmt lögum og samanstendur sú trygging af ábyrgðar- og slysatryggingu ökumanns og eigenda.
Kaskótrygging sér um að bæta skemmdir á eigin bifreið og aukahlutum komi til tjóns. Þú velur sjálfur eigin áhættu, getur verið hvaða upphæð sem er, og greiðir síðan aðeins þá fjárhæð ef til tjóns kemur.
Hálfkaskó er ódýrari trygging með þrengra bótasvið en kaskótryggingin. Tryggingin er aðallega hugsuð fyrir bifreiða- og dráttarvélaeigendur sem aka ekki mikið í þéttbýli þar sem umferð er meiri.
Bílaábyrgð TM er vátrygging sem bætir viðgerðarkostnað sem rekja má til galla á framleiðslu og við samsetningu bifreiða, bæði nýrra og notaðra.
Á undanförnum árum hefur fjöldi ferðavagna aukist mjög mikið. Oft og á tíðum liggja mikil verðmæti í þessum vögnum og getur það verið verulegt fjárhagslegt tjón fyrir fjölskyldur að eyðileggja svona vagn.
Tryggja þarf mótorhjól rétt eins og bifreiðar. Innifalið í tryggingunni eru ábyrgðartrygging og slysatrygging ökumanns og eigenda. Sömu skilmálar gilda fyrir mótorhjól og bifreiðar og er þetta skyldutrygging.