Öryggisstefna TM

Markmið öryggisstefnu Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) er að tryggja öryggi upplýsingaverðmæta félagsins með sem skilvirkustum hætti þannig að þau nýtist sem best í rekstri félagsins.

Við mótun öryggisstefnu TM var höfð hliðsjón af staðlinum ISO/IEC 17799 - Upplýsingatækni - Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.

Tryggingamiðstöðin hf. fylgir eftirfarandi öryggisstefnu:

  1. TM gætir þess í hvívetna að tryggja hámarksöryggi upplýsinga um viðskiptavini sína, að gætt sé trúnaðar um þær, að þær séu réttar og tiltækilegar þegar á þarf að halda.
  2. TM fylgir þeim lögum og reglum sem fylgja ber um stjórnun upplýsingaöryggis.
  3. Stefna félagsins í öryggismálum er bindandi fyrir alla starfsmenn og nær til allra fyrirtækja, stofnana og starfsmanna þeirra sem veita félaginu þjónustu.
  4. Allir starfsmenn og þjónustuaðilar eru skuldbundnir til að vernda gögn og upplýsingakerfi gegn óheimilum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, glötun eða flutningi.
  5. TM stuðlar að virkri öryggisvitund starfsmanna, þjónustuaðila, viðskiptavina og gesta.
  6. TM tryggir að öllum þáttum þessarar stefnu sé framfylgt með ráðstöfunum í samræmi við störf og ábyrgð viðkomandi einstaklinga.
  7. TM framkvæmir reglulega áhættugreiningu til þess að ákveða hvort frekari aðgerða sé þörf.
  8. Innri öryggisstjóri gefur árlega út skýrslu um hvernig stefnu þessari er framfylgt.
  9. Starfsmönnum og verktökum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri mál TM, viðskiptamanna þess eða annarra starfsmanna.
  10. TM endurskoðar þessa stefnu eins og tilefni er til en að lágmarki á tveggja ára fresti.
  11. TM mun fylgja ISO27001:2005 - Stjórnkerfi upplýsingaöryggis sem er grundvöllur skipulags- og viðhaldsaðgerða sem standa vörð um leynd, réttleika og tiltækileika gagna og upplýsingakerfa.

Umfang

Öryggisstefnan og viðmið sem henni fylgja ná til starfsmanna, starfsstöðva og upplýsingatæknibúnaðar sem TM notar við daglegan rekstur. Stefnan nær einnig til dótturfélaga TM, Líftryggingamiðstöðvarinnar hf og Tryggingar hf.

Reykjavík 21. nóvember 2007.

Tryggingamiðstöðin hf

Sigurður Viðarsson
forstjóri.

Vefþulan er vefþjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá

 

 

 


Efraval


Stoðflokkar - efst á síðu


Aðgengisvottun fyrir forgang I, II og III