Heimagisting TM
Heimagisting TM er viðbótartrygging við Heimatryggingu TM sem tekur á þjófnaði og skemmdarverkum á innbúi á meðan heimili þitt er í útleigu í 90 daga á ári eða skemur, eins og t.d. í gegnum Airbnb eða sambærileg þjónustufyrirtæki.
Mikill fjöldi Íslendinga hefur undanfarin ár leigt út heimili sín til lengri eða skemmri tíma í gegnum Airbnb og sambærileg þjónustufyrirtæki. Það átta sig ekki allir á því að tjón sem leigutakar geta valdið, eða tjón sem verður á meðan húsnæðið er í útleigu, er oft ekki bætt í venjulegum heimilistryggingum.
Því kynnum við frábæra viðbót við heimatrygginguna þína, Heimagistingu TM, tryggingu sem tekur á þjófnaði og skemmdarverkum á innbúi á meðan heimili þitt er í skammtímaútleigu.
Við bendum á að eftir 1. janúar 2017 verður skylda að fá vottorð frá sýslumanni ef leigja á lögheimili í 90 daga á ári eða skemur. Hafðu því allt á hreinu ef þú hefur hug á að leigja út heimili þitt og fáðu þér Heimagistingu TM.
Kostir Heimagistingar TM
- Leigusali er tryggður fyrir skemmdarverkum og þjófnaði úr eign á meðan eign er í útleigu.
- Leigusali er tryggður fyrir innbrotsþjófnaði á meðan eign er í útleigu.
- Tryggingin kostar einungis u.þ.b 4.500 kr. á ári (breytilegt eftir kjörum viðskiptavina) óháð stærð eignar eða heildarinnbúsverðmætis.
Innifalið
- Þjófnaður og skemmdarverk á vátryggðum munum af völdum þeirra sem dveljast í íbúðinni á vegum leigjanda.
- Þjófnaður og skemmdarverk á vátryggðum munum við innbrot í húsnæði. Það skilyrði er þó sett að á vettvangi séu greinileg og ótvíræð merki þess að brotist hafi verið inn.
- Tjón á almennu innbúi og persónulegum lausafjármunum.
Ekki innifalið
- Tjón á skartgripum.
- Tjón á verkfærum og varahlutum.
- Þjófnaður á peningum.
Vinsamlegast athugið að þessi listi er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum okkar.
Skilmálar
Heimatrygging TM1
Heimatrygging TM2
Heimatrygging TM3
Heimatrygging TM4