Góð ráð í aðventunni

Aðventan er tími ljósa, samveru og undirbúnings fyrir jólin. Á þessum árstíma kveikjum við oftar á kertum, setjum upp ljós og skreytingar og verjum meiri tíma við eldamennsku og bakstur.

Með nokkrum einföldum öryggisvenjum má draga úr hættu á eldsvoða og njóta aðventunnar með meiri hugarró.

Kerti og jólaskreytingar

  • Skiljum logandi kerti aldrei eftir án eftirlits.
  • Slökkvum á kertum áður en við yfirgefum herbergið eða förum að sofa.
  • Höfum kerti í öruggri fjarlægð frá gluggatjöldum, skreytingum og öðrum eldfimum efnum.
  • Gætum þess að kertaskreytingar séu stöðugar og þannig úr garði gerðar að ekki geti kviknað í þeim þótt kertin brenni niður.
  • Staðsetjum kertaljós þar sem börn og gæludýr ná ekki til þeirra.

Jólaljós og rafmagn

  • Gætum að því að tengja ekki mörg orkufrek raftæki í sama fjöltengi.
  • Göngum úr skugga um að rafmagnssnúrur séu í lagi.
  • Rafbúnaður gefur gjarnan frá sér hita og þarf loft til kælingar. Pökkum ljósaseríum ekki inn í skreytingar sem loftar ekki um.
  • Skiljum ekki tuskur eða viskastykki eftir of nálægt helluborðum.
  • Þrífum grill, viftur og aðra staði þar sem mikil fita getur safnast upp.
  • Slökkvum á eldavélinni eða tökum potta af hellum ef við þurfum að sinna öðru.

Eldamennska og jólabakstur

  • Skiljum ekki eldavélina eftir án eftirlits þegar verið er að elda eða baka.
  • Höfum viskastykki, tuskur, pappír og annað eldfimt efni í öruggri fjarlægð frá helluborðum og öðrum hitagjöfum.
  • Þrífum viftur og ofna reglulega þar sem fita og ryk geta safnast upp.
  • Slökkvum á hellum eða tökum potta og pönnur af þeim ef við þurfum að sinna öðru.

Brunavarnir yfir hátíðirnar

  • Höfum slökkvitæki og eldvarnarteppi aðgengileg og tryggjum að heimilisfólk viti hvar þau eru.
  • Prófum reykskynjara og skiptum um rafhlöður eftir þörfum.
  • Reykskynjarar eiga að vera á hverri hæð og í öllum svefnherbergjum. Þeir eiga að vera sem næst miðju lofts, ekki nær vegg en 30 cm. Í risíbúðum er best að hafa þá um 30 cm frá mæni.
  • Notum ekki lyftur ef eldur kemur upp.
  • Ræðum við börn um hvernig þau eigi að bregðast við ef reykskynjari fer í gang. Brýnum fyrir þeim að fela sig ekki inni í skáp eða undir rúmi.
  • Förum yfir flóttaleiðir heimilisins og gætum þess að þær séu greiðfærar.

Aðventan á að vera notalegur tími. Með því að huga að brunavörnum og fara reglulega yfir helstu öryggisatriði getum við skapað öruggara umhverfi fyrir fjölskyldu, vini og gesti yfir hátíðirnar.