3. nóvember 2023

Hvatningar­verðlaun TM

LearnCove hlýtur Hvatningarverðlaun TM og Sjávarútvegsráðstefnunnar 2023

Í gær fór fram afhending Hvatningarverðlauna TM og Sjávarútvegsráðstefnunnar. Hvatningarverðlaunin hafa það hlutverk að hvetja ung fyrirtæki og frumkvöðla til dáða með það að markmiði að stuðla að nýbreytni og vekja athygli almennings á gildi nýsköpunar og þróunar í sjávarútvegi. Dómnefnd veitti þremur verðugum verkefnum viðurkenningu að þessu sinni, auk verðlaunanna. Björk Viðarsdóttir framkvæmdastjóri þjónustu hjá TM afhenti verðlaunin á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í dag.

LearnCove hlaut viðurkenningu og Hvatningarverðlaunin í ár.

LearnCove er nýsköpunar- og hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur frá árinu 2016 unnið að þróun hugbúnaðar sem gerir íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum kleift að halda utan um fræðslu, gæðaferli og úttektir í einum hugbúnaði. Sérstaða fyrirtækisins felst í því að hjálpa viðskiptavinum að búa til fræðslunet byggt á þeirra sérþekkingu eða vörum. Með bættri fræðslu og skýrara utanumhaldi gæðamála geta sjávarútvegsfyrirtæki fækkað slysum og skemmdum á búnaði. LearnCove leggur sitt af mörkum til sjálfbærni með fækkun hráefnistjóna og allt fræðsluferli er rafrænt. Hugbúnaðurinn er með sjálfvirkan tungumálastuðning á 136 tungumálum. Fyrirtækið er nú að taka sín fyrstu skref inn á erlendan markað. LearnCove er dæmi um íslenskt hugvit í sjávarútvegi sem getur gagnast á öllum stigum virðiskeðjunnar i því skyni að bæta nýtingu sjávarafurða, auka sjálfbærni og styrkja framleiðni.

Þá hlutu Ankeri Solutions og Aurora Abalone sérstakar viðurkenningar fyrir sín verkefni.

Ankeri Solutions fyrir að þróa hugbúnaðarlausn fyrir fyrirtæki sem eiga og reka flutningaskip. Hugbúnaðarlausnin Ankeri hjálpar rekstraraðilum flutningaskipa að nota gögn til að finna það skip sem hentar best fyrir þeirra flutninga, með því að samþætta gögn sem lýsa skipum, höfnum og flutningaleiðum með rekstrargögnum skipa. Með þessu móti geta rekstraraðilar lágmarkað heildar kostnað sinn við flutninga og á sama tíma dregið úr kolefnisfótspori fyrirtækisins. Meðal viðskiptavina Ankeris er Hapag-Lloyd í Þýskalandi sem er fimmta stærsta gámaflutningafyrirtæki í heimi. Ankeri hlaut verðlaunin „Maritime Start-up Award 2022“ á SMM skipatæknisýningunni í Hamborg í fyrra, ásamt því að vera tilnefnt til „Start-up of the Year“ á „Martime Decarbonisation Awards” nú í September.

Aurora Abalone (áður Sæbýli) fyrir þróun í sæeyrnaeldi. Fyrirtækið hefur með seiglu byggt upp nýstárlega tækni og lausnir sem nýta auðlindir úr nærumhverfinu til þess rækta upp verðmæta, fágæta vöru. Aðgangur að jarðvarma, þörungum, hreinum sjó og hreinu vatni gerir staðsetningu þeirra ákjósanlega fyrir framleiðsluna. Fyrirtækið er nú á fyrstu metrunum í uppskölun á ræktuninni þar sem aðferðum sem hafa verið lengi í þróun verður beitt í magnframleiðslu á sæeyrum af gerðinni Ezo og California Red. Þessar tegundir eru eftirsóttar af matgæðingum. Tæknin sem hefur verið þróuð líkist í raun að mörgu leiti lóðréttum gróðurhúsum. Fyrirtækið er gott dæmi um hvar þrautseigja og hugsjón getur orðið til þess að byggja upp störf og ábatasöm fyrirtæki með nýsköpun.

Dómnefnd skipuð sex einstaklingum úr sjávarútvegsfyrirtækjum, rannsóknastofnunum, tæknifyrirtækjum og þjónustuaðilum við sjávarútveginn lagði mat á innsendar tillögur.

Björk Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu hjá TM:

„Mikilvægi nýsköpunar og þróunar fyrir íslenskan sjávarútveg er ótvírætt og við hjá TM erum stolt af því að geta hvatt þau verkefni sem þykja skara fram úr til dáða. Það hefur verið virkilega verðmætt fyrir TM, sem hefur frá upphafi sérhæft sig í ráðgjöf og tjónaþjónustu fyrir sjávarútveg, að fá innsýn í þá nýsköpun sem á sér stað í greininni. Við óskum fyrirtækjunum innilega til hamingju og þökkum dómnefnd fyrir gott samstarf.”

Aðalheiður Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi LearnCove:

„Það er mikill heiður að fá þessa viðurkenningu. Við erum þakklát fyrir allt það traust sem fyrirtæki í sjávarútvegi hafa veitt okkur í þessari vegferð. Við hlökkum til vinna áfram með þeim í að efla mannauðinn, bæta öryggi, vinna að sjálfbærni og gæðum afurða.”


TM óskar fyrirtækjunum þremur innilega til hamingju.