12. janúar 2026

Aukakrónur af tryggingunum þínum

Nú býðst viðskiptavinum að safna Aukakrónum af tryggingakaupum hjá TM og jafnframt að greiða fyrir tryggingar sínar með Aukakrónum.

Aukakrónur er fríðindakerfi sem Landsbankinn hefur um árabil boðið viðskiptavinum sínum. TM er hluti af Landsbankanum og nú býðst viðskiptavinum að safna Aukakrónum af tryggingakaupum hjá TM og jafnframt að greiða fyrir tryggingar sínar með Aukakrónum.

Viðskiptavinir fá Aukakrónur af tryggingum sínum með því að greiða fyrir þær með greiðslukorti sem safnar Aukakrónum frá Landsbankanum. Ein Aukakróna jafngildir einni íslenskri krónu sem hægt er að nota til að greiða fyrir vörur og þjónustu hjá samstarfsaðilum Aukakróna, þar á meðal tryggingar hjá TM.


Á vef Landsbankans má finna allar upplýsingar um Aukakrónur, samstarfsaðila og hvernig hægt er að fá kort sem safna Aukakrónum. Þar sem greiða þarf fyrir tryggingar með slíku korti til að fá Aukakrónur kann að vera nauðsynlegt að breyta greiðsluleið. Það er einfalt að gera í TM appinu.


Svör við algengum spurningum má finna hér á spurt og svarað síðu um Aukakrónur og tryggingar.


Viðskiptavinum er velkomið að hafa samband við TM í gegnum netspjall, tölvupóst eða í síma 515 2000 ef spurningar vakna.


TM og Landsbankinn eru betri saman og munu halda áfram að finna leiðir til frekara samstarfs, viðskiptavinum sínum til góða.