8. desember 2022

Birkir Jóhannsson nýr forstjóri TM

Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri TM og tekur við starfinu af Sigurði Viðarssyni.

Birkir hefur undanfarin misseri gegnt stöðu framkvæmdastjóra kjarnastarfsemi og stafrænna lausna hjá VÍS og hefur mikla reynslu af fjármálamörkuðum. Áður en hann hóf störf hjá VÍS starfaði Birkir m.a. hjá Birti Capital Partners, Valitor, Arion banka og Lögmönnum Höfðabakka.

Birkir er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Auk þess hefur Birkir lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og aflað sér réttinda sem héraðsdómslögmaður.

Birkir mun taka sæti í framkvæmdastjórn samstæðu Kviku.

Birkir Jóhannsson, nýráðinn forstjóri TM:

Ég er fullur tilhlökkunar að hefja störf hjá TM og kynnast því frábæra starfsfólki sem þar starfar. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum tryggingamarkaði á síðastliðnum árum. Samhliða því eru að verða breytingar á þeim samskipta- og dreifileiðum sem neytendur kjósa. TM og Kvika eru í kjörstöðu til að nýta sér þessar breytingar og er ég stoltur af því að fá að taka þátt í þeirri vegferð.“

Inga Björg Hjaltadóttir, stjórnarformaður TM:

„Við erum afar ánægð með að fá Birki inn í okkar öfluga stjórnendateymi hjá TM, til að leiða vegferð félagsins sem framundan er. Hann býr yfir margþættri reynslu úr fyrri störfum sem fellur einstaklega vel að stefnu TM hvað varðar stafræna þróun og tengingu við öflugar lausnir samstæðu Kviku á því sviði.

Á sama tíma vil ég þakka Sigurði Viðarssyni fyrir störf sín sem forstjóri TM. Hann hefur á farsælan hátt leitt krefjandi breytingarferli í kjölfar samruna TM og Kviku og það er gott fyrir TM að hann verður áfram sterk rödd í samstæðu Kviku sem aðstoðarforstjóri. Sigurður hefur átt mjög farsælan feril sem forstjóri TM sl. 15 ár, félagið hefur verið í fararbroddi í þróun á tryggingamarkaði og reksturinn verið afar traustur.“  

 

TM er dótturfélag Kviku en framkvæmdastjórn samstæðu Kviku mun samanstanda af framkvæmdastjórn Kviku banka, forstjóra TM, framkvæmdastjóra Kviku eignastýringar og framkvæmdastjóra Kviku Securites í London.

Í framkvæmdastjórn samstæðu Kviku verða auk Birkis: Marinó Örn Tryggvason (forstjóri), Sigurður Viðarsson (aðstoðarforstjóri), Lilja Jensen (yfirlögfræðingur), Ólöf Jónsdóttir (framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs), Bjarni Eyvinds (framkvæmdastjóri fyrirtækja og markaða), Eiríkur Magnús Jensson (framkvæmdastjóri fjármálasviðs), Anna Rut Ágústsdóttir (framkvæmdastjóri rekstrarsviðs), Thomas Skov Jensen (framkvæmdastjóri áhættustýringar), Hannes Frímann Hrólfsson (framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar) og Gunnar Sigurðsson (framkvæmdastjóri Kviku Securities í London). Regluvörður samstæðu Kviku er Erna Heiðrún Jónsdóttir og innri endurskoðandi Ásta Leonhardsdóttir.