Landsbankinn býður nú tryggingar TM fyrir einstaklinga og fjölskyldur
Landsbankinn hefur hafið sölu og þjónustu trygginga fyrir einstaklinga og fjölskyldur í samstarfi við TM. Með samstarfinu fá viðskiptavinir bankans aðgang að fyrsta flokks tryggingaþjónustu og hagstæðum kjörum.
Viðskiptavinir sem velja heildarpakka trygginga geta fengið endurgreiðslu eftir tjónlaust ár, aðgang að Velferðartorgi og fjölbreyttum fríðindum. Þá er einnig hægt að safna Aukakrónum samhliða tryggingaviðskiptum.
Einfalt og aðgengilegt
Upplýsingar um tryggingarnar eru aðgengilegar á vef og í appi Landsbankans. Þar geta viðskiptavinir:
- séð hvaða kjör standa þeim til boða
- gengið frá tryggingum hratt og örugglega
- pantað símtal eða bókað tíma í ráðgjöf
Öflug heildarlausn – sterk tjónaþjónusta
Birkir Jóhannsson, forstjóri TM, segir:
„Saman búa Landsbankinn og TM yfir framúrskarandi teymi sem getur veitt viðskiptavinum sínum alhliða fjármálaþjónustu, án hliðstæðu hér á landi. Bankinn getur nú veitt einstaklingum tryggingaráðgjöf og þjónustu, en ef tjón verður mun starfsfólk TM grípa viðskiptavini okkar, með sinni öflugu tjónaþjónustu. Við erum svo sannarlega betri saman.“
„Við erum stolt og ánægð með að geta boðið viðskiptavinum bankans framúrskarandi tryggingaþjónustu í samvinnu við TM. Nú geta viðskiptavinir fengið alla fjármálaþjónustu á einum stað sem einfaldar lífið og eykur yfirsýn.“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Við hjá TM erum stolt af því að vera traustur bakhjarl nýrrar tryggingastarfsemi bankans. Saman munum við leggja allt kapp á að gera viðskiptavinum okkar mögulegt að vaxa og dafna sama hvar þeir eru í lífinu og grípa þá þegar áföll verða.