5. nóvember 2024

RARIK og TM

RARIK og TM taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónstilkynninga tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október sl.

Við hjá TM ásamt RARIK munum taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónstilkynninga tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október síðastliðinn.

Truflun varð á flutningsneti Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli með þeim afleiðingum að víða var rafmagnslaust í nokkra klukkutíma. Fjöldi raftækja viðskiptavina RARIKS skemmdust þennan dag. RARIK mun greiða fólki bætur vegna þessa tækja.


Hvað þurfa viðskiptavinir að gera?

TM mun hafa samband við viðskiptavini RARIKS sem hafa þegar tilkynnt tjón vegna afgreiðslu málsins og óska eftir frekari upplýsingum um tjónið ef þörf er á. Fyrir frekari fyrirspurnir eða gögn vegna tjónsins hvetjum við þig að hafa samband við okkur með tölvupósti á rarik@tm.is, kíkja við í útibú okkar eða hringja í okkur í síma 515 2000 og við aðstoðum þig. 


Ef þú hefur ekki þegar tilkynnt tjón sem varð á þínu tæki hvetjum við þig til þess að hafa samband við RARIK. Tilkynna má tjón hér eða senda tilkynningu á rarik@tm.is.


RARIK og TM munu kappkosta að koma í veg fyrir frekari tafir á afgreiðslu mála. Breytingarnar eru gerðar með hagsmuni viðskiptavina RARIK að leiðarljósi og vilja RARIK og TM gera sitt besta til að tryggja farsæla lausn á öllum málum.


Hvernig verður tjónið metið?

  • Ónýt tæki
    RARIK mun greiða viðskiptavinum sínum bætur fyrir ónýt tæki í samræmi við verð á nýju tæki í sambærilegum gæðaflokki. Tekið skal fram að ekki er skylt að nýta bótafé til að kaupa ný tæki.
  • Biluð tæki en ekki ónýt
    RARIK mun greiða bætur vegna tækja sem hafa bilað í kjölfar truflunarinnar en hægt er að gera við, þ.e.a.s. vegna varahluta og vinnu við viðgerðir. Bilanir á tækjum skal tilkynna eins og hvert annað tjón. Viðskiptavinir eru beðnir um að senda allar kvittanir vegna viðgerða og varahluta á rarik@tm.is svo hægt sé að taka þær inn í úrvinnslu tilkynninga.
  • Tímamörk tilkynninga
    Alvarlegar rafmagnstruflanir geta haft þau áhrif að raftæki geta orðið viðkvæm og þau bilað einhverjum vikum eða mánuðum síðar. Hægt er að bæta við tjónstilkynningar til TM eftir á, jafnvel eftir að bætur hafa verið greiddar.  RARIK hefur ákveðið að miða tímamörkin við 3 mánuði, eða 3. janúar 2025, vegna tækja sem bila eftir atburðinn. Verði tjón tilkynnt eftir þann tíma verður slíkt metið sérstaklega.
  • Afleitt tjón
    Afleitt tjón er t.d. tími fólks, óþægindi, ferðir milli staða og þess háttar. RARIK bætir ekki afleitt tjón en mun greiða sendingarkostnað vegna nýrra tækja/varahluta eða tækja sem þarf að senda í viðgerð.
  • Gagnaöflun
    Viðskiptavinir eru beðnir um að taka myndir af ónýtum tækjum og öðru tjóni. Ónýt tæki verða sótt heim til viðskiptavina og mun TM annast milligöngu um það.
  • Útskipting skemmdra sölumæla
    Öllum mælum sem skemmdust í trufluninni 2. október þarf að skipta út fyrr en síðar og biðjum við viðskiptavini að taka vel á móti verktökum og starfsfólki á okkar vegum sem hafa samband til að skipta mælunum út. 

Við bendum viðskiptavinum RARIKS á nánari upplýsingar í tilkynningu hér