30. mars 2021

Sameining TM og Kviku

Sameining TM og Kviku var endanlega samþykkt á hluthafafundum félaganna fyrr í dag. Með sameiningunni verður til sterkt fjármálafyrirtæki sem er í stakk búið að auka samkeppni og bjóða viðskiptavinum sínum upp á fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum fjármála- og tryggingaþjónustu.

„Félagið verður fjárhagslega sterkt fyrirtæki með breiðan tekjugrunn sem mun geta boðið viðskiptavinum sínum upp á fjölþætta þjónustu á öllum helstu sviðum fjármála- og tryggingaþjónustu. Við sjáum veruleg tækifæri felast í því að tengja saman mismunandi vörur til þess að auka þjónustu og einfalda líf fólks og hlökkum til að takast á við framtíðina saman“ segir Sigurður Viðarson forstjóri TM trygginga.

Sameiningin hefur engin áhrif á viðskiptavini TM eða samstarfsaðila og þeir þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir vegna hennar. Við hlökkum til að þjónusta viðskiptavini TM áfram með sínar tryggingar og síðan enn víðtækari fjármálaþjónustu í framtíðinni.