10. janúar 2023

TM afhenti Landsbjörgu íslenskt snjallsiglingarkerfi

TM afhenti Slysavarnarafélaginu Landsbjörgu íslenskt snjallsiglingarkerfi til notkunar í björgunarskipinu Þór.

TM afhenti Slysavarnarfélaginu Landsbjörg til eignar, snjallsiglingarkerfi sem þróað er af íslenska sprotafyrirtækinu Hefring ehf. Kerfið, sem kallast Hefring Marine, hefur verið sett í björgunarskipið Þór, sem er fyrsta björgunarskipið af þremur sem Landsbjörg hefur samið um smíði á en heimahöfn Þórs er í Vestmannaeyjum.

“Við höfum fylgst með og verið til ráðgjafar við þróun á snjallsiglingarkerfinu frá því snemma í þróunarferlinu, þar með talið að nota kerfið til þjálfunar” sagði Örn Smárason, verkefnissstjóri sjóbjörgunar hjá Landsbjörg. “Skipstjórnendur félagsins munu þurfa þjálfun á þessi nýju skip þar sem hámarkshraði þeirra er 25 hnútar, sem telst háhraðasigling, en hámarkshraði gömlu björgunarskipana er 16-18 hnútar. Það er því sérstaklega mikilvægt að eiga upplýsingar um áhættu sem fylgir háhraðasiglingu en kerfi Hefring Marine veitir þessar upplýsingar í rauntíma. Þá þarf einnig að sinna þjálfun nýliða sem bætast í hópinn en tryggja þarf öryggi þeirra og annara áhafnarmeðlima á sama tíma og gæta þarf þess að nýju björgunarskipin fái rétta meðhöndlun.” bætti Örn við.

“TM hefur fylgst vel með þróun á Hefring Marine snjallsiglingarkerfinu frá því að hugmyndin kom upp, stutt þróun þess, ásamt því að veita fyrirtækinu ráðgjöf á rannsóknarstigum. Þá höfum við einnig haft milligöngu um að koma kerfinu til notenda” sagði Methúsalem Hilmarsson sérfræðingur í forvörnum hjá TM. “Við teljum snjallsiglingarkerfið frá fyrirtækinu einstakt á heimsvísu og um leið og við vekjum athygli á þeirri þróun sem á sér stað hjá nýsköpunarfyrirtækinu Hefring ehf. er það okkur sönn ánægja að styðja við það frábæra starf sem Landsbjörg sinnir” bætir Methúsalem við.

“Hefring Marine snjallsiglingarkefið er í notkun hjá fjölmörgum útgerðum og rekstraraðilum skipa sem stunda háhraðasiglingu víða um heim svo sem hjá norska og sænska sjóbjörgunarsambandinu svo dæmi séu nefnd” sagði Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring ehf.  “Upphaflega markmiðið með þróun kerfisins var að auka öryggi sjófarenda en rannsóknir hafa sýnt fram á að allt að 96% slysa á sjó megi rekja til mannlegra mistaka” sagði Karl Birgir.  “Síðustu misseri hefur gervigreind sem stýrir snjallsiglingarkerfinu leitt af sér enn frekari þróun en með greiningu á gögnum sem kerfið hefur safnað er unnt, með því að aðlaga hraða og stefnu, að draga úr eldsneytiseyðslu og kolefnislosun um allt að 20%. Kerfið getur því aukið hagkvæmni útgerðar og sparað atvinnunotendum, líkt og Landsbjörg, töluverðan eldsneytiskostnað á sama tíma og dregið er úr umhverfisáhrifum.” Sagði Karl Birgir að lokum. Hefring ehf. stefnir á umtalsverða stækkun á komandi misserum og í því sambandi er Hefring ehf. að ganga frá samstarfssamningi við alþjóðlegt stórfyrirtæki sem er leiðandi á sviði þróunar á tækni fyrir ómannaða báta. Þetta er stór áfangi en með samningnum verður komið á samstarfi um að tengja saman tæknilausnir fyrirtækjanna en þannig kemst Hefring ehf. inn á ört stækkandi markað fyrir ómannaða báta.